Við reisum upp efnahag einnar þjóðar með atvinnu, en ekki því að stoppa í göt atvinnuleysisins.

Hver og einn einasti nýkjörinn alþingismaður þarf að vinda sér í það verkefni að tala fyrir hugmyndum um atvinnusköpun hér á landi, eins og skot.

Við eigum að skapa hér uppbyggingu eins þjóðfélags er byggir á sjálfbærni til lands og sjávar og þar eru verkefnin nóg í nýrri atvinnusköpun á sviðum landbúnaðar og sjávarútvegs, þar sem opna þarf hin stöðnuðu kerfi til nýliðunar , neðan frá og feta kerfin í markvissum áföngum í átt til þess að þróa hér lífrænan landbúnað, og sjávarútveg er undirgengst umhverfismarkmið á alþjóðavísu.

Ræktað land býður hér á landi, til framleiðslu hágæðalandbúnaðarafurða í sátt við móður náttúru og sama máli gildir um smærri einingar í sjávarútvegi, þar sem notkun umhverfisvænna veiðarfæra við strendur landsins getur hækkað verð afurða á mörkuðum til muna.

Þetta þýðir fleiri störf innanlands, sem aftur þýðir þjóðhagslega hagkvæmni, og sjálfbærni einnar þjóðar.

kv.Guðrún María.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Mæl þú manna heilust Guðrún.

Sigurður Þórðarson, 18.5.2009 kl. 07:02

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Mjög svo umhugsunarvert

Jón Snæbjörnsson, 18.5.2009 kl. 07:59

3 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er ágæt hugleiðing Guðrún og ég er sammála þér um mikilvægi nýrrar sóknar í atvinnmálum til atvinnusköpunar og tel það forsendu þess að við vinnum okkur út úr kreppu á sem styðstum tíma. Það eru sóknarfæri í sjávarútvegi og vinnslu sjávarafla.  Því miður sé ég ekki að það sé þjóðhagslega hagkvæmt að auka landbúnaðarframleiðslu nema það sé þá markaður fyrir hendi sem kaupi vörurnar yfir framleiðslukostnaði.  Mér þykir líklegra að íslenska þjóðin geti náð árangri með markvissari uppbyggingu smáiðnaðar bæði á sviði framleiðslu og þjónustu. En fyrst og fremst verður einstaklingurinn að hafa svigrúm til að skapa og byggja upp. Annars verður ekkert úr góðum tækifærum.

Jón Magnússon, 18.5.2009 kl. 16:52

4 identicon

Heil og sæl; Guðrún María-líka, sem þið önnur, hér á síðu hennar !

Rauðliða hyskinu; munum við þurfa, að koma frá, með öllum þeim tiltæku ráðum - sem bjóðast kunna.

Að öðrum kosti, munu þau Jóhanna og Steingrímur ganga af okkur dauðum; BÓKSTAFLEGA, gott fólk. 

Því; ekki hlaupum við öll; til útlendra velunnarra - sem skjóls gætu veitt okkur, gegn ofurefli niðurrifs aflanna, hér á Fróni.

Með beztu kveðjum /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 18.5.2009 kl. 23:37

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sælir og blessaðir, og takk fyrir ykkar innlegg.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 19.5.2009 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband