Vil taka fram að ég er EKKI í framboði.

Það er nokkuð sérkennileg staða sem sú er þetta ritar hefir mátt meðtaka frá 12. mars síðastliðnum, þar sem mér var tilkynnt að ég hefði verið tekin út af framboðslista í einum flokki, sem þá hafði áður sent tilkynningu til fjölmiðla með mínu nafni í framboði.

Enn hefur engin tilkynning borist um breytingarnar og alltaf verið að tala við mig um framboðið og aftur framboðið, á förnum vegi.

Sem sagt ég er EKKI í framboði.

kv.Guðrún María.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Þarft þú ekki  samkvæmt lögum um framboð til Alþingis að tilkynna sjálf til kjörstjórnar að þú sért ekki í framboði.Ég stend í þeirri meiningu að eftir að flokkur hefur tilkynnt framboðslista þá geti enginn sagt mann út af listanum nema hann sjálfur.Ég skora á þig að vera áfram á listanum og þú látir ekki henda þér þaðan út vegna þess að það séu aðrir sem ráði málfari þínu.Kv.

Sigurgeir Jónsson, 24.3.2009 kl. 20:36

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sælir herramenn.

Tryggvi, mér best vitanlega snýst málið um löglega boðaðan fund, eða ekki löglega boðaðan fund til ákvarðanatöku í SV, meðal annars.

Sigurgeir, tilkynning til fjölmiðla um efstu menn er eitt, tilkynning til kjörstjórnar annað. Ég hefi undir höndum ákvörðun um breytingu þar sem ég er tekinn út og annar settur inn, þannig er það. Hlýtur að líða að tilkynningu þess hins sama.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.3.2009 kl. 00:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband