Eiginhagsmunasérhyggjupostulasamfélagið Ísland.

Það hefur verið með ólíkindum að horfa upp á það hvernig þróun mála hefur orðið til í einu samfélagi undanfarna áratugi.

Ég um mig frá mér til mín, punktur,...

hefur gert það að verkum að orðið hefur til þjóðfélag frumskógarlögmála einstaklingshyggjunnar, þar sem hver rær að sínum eigin hagsmunum án þess að nokkur heildarsýn sé meðferðis og menn eru tilbúnir til þess að rífa allt niður í kring um sig, sjálfum sér til meints framdráttar.

Í upphafi skyldi endir skoða, og það þjóðfélag sem menn töldu sig vera að einkavæða, varð að einokunarþjóðfélagi örfárra ríkra á kostnað fleiri fátækra.

Þangað til allt fór á hausinn og þeir sem höfðu verið kostaðir af þessari tegund einkavæðingar, misstu spón úr aski sínum, og allt varð vitlaust.

Allir vissu allt í einu hvað hafði farið forgörðum og komu nú til þess að breyta málum, afar trúverðugt eða hitt þó heldur.

kv.Guðrún María.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Það sem heldur uppi trausti Íslands í augum heimsins núna er hið íslenska fiskveiðistjórnunarkerfi.Sjálfbær nýting Íslendinga á sjávarauðlindinni vekur aðdáun meðan allt annað er hér í kalda koli.Um leið og augu Frjálslyndaflokksins opnast gagnvart fiskveiðistjórnarkerfinu mun vegur hans rísa.Kv.

Sigurgeir Jónsson, 20.3.2009 kl. 21:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband