Verkefni stjórnmálanna hér á landi er umbreyting atvinnuvegakerfa sjávarútvegs og landbúnađar.
Ţriđjudagur, 3. febrúar 2009
Ţađ er sögulega stórundarlegt ađ ađeins einn flokkur Frjálslyndi flokkurinn skuli einn hafa barist fyrir breytingum á kvótakerfi sjávarútvegs hér á landi, heilan áratug viđ nćr algjört andvaraleysi allra annarra flokka er eiga fullltrúa á Alţingi Íslendinga.
Gömlu flokkarnir VG/Alţýđubandag, Samfylking/Alţýđuflokkur, Framsóknarflokkur og Sjálfstćđisflokkur hafa ekki fćrt fram nokkrar einustu hugmyndir til umbreytinga á mikilvćgasta hagsmunamáli einnar ţjóđar til lengri eđa skemmri tíma, umbreytingu í fiskveiđistjórnun og ástćđan ef til vill sú ađ allir hafa ţeir lagt blessun sina yfir skipulagiđ međ einum eđa öđrum hćtti, ţví miđur.
Á sama tíma reyndu flokkar ţessir ađ finna hugsjónum sínum far í ţví ađ vera á móti álverum ellegar vilja koma ţjóđinni beint inn í Esb, á sama tíma og ráđaflokkar gengu um í nýju fötum keisarans, gullofnum frá hvirfli til ylja af markađsloftbólubraski sem engin innistćđa var fyrir.
Markađsbraski sem hófst međ ţvi ađ veđsetja óveidda ţorska í sjó og hafa ţađ sem uppgjöf hins íslenska hlutabréfamarkađar.
Álíka system var innleitt í mjólkuriđnađi ţar sem fćkkun og stćkkun búa var sama markađsformúla og gilti í sjávarútvegi, og mun seint verđa taliđ annađ en arfur verksmiđjubúskapar sem menn töldu sér trú um ađ vćri " hagrćđing " undir formerkjum hins frjálsa markađar hér á landi.
Helsti gallinn er hins vegar sá ađ íslenzkt ţjóđfélag er ađ höfđatölu ekki markađur og gildi lögmála sem slíkra ţví ekki sem skyldi hér á landi og óheft frelsi án landamćra ţví í skjótu bragđi orđiđ ađ helsi og einokun.
Ţađ mun verđa mjög fróđlegt ađ heyra fulltrúa gömlu flokkanna útskýra andvaraleysi sitt gagnvart ađferđum í markađsskipulagi einnar ţjóđar, fyrir nćstu kosningar.
kv.Guđrún María.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sćl Guđrún. Athyglisvert ađ ekki er stafkrókur um umbreytingu í
sjávarútvegi hjá nýrri ríkisstjórn. Vinstri grćnir eru sami kvótaflokkurinn og hinir allir utan Frjálslynda.
Guđmundur Jónas Kristjánsson, 3.2.2009 kl. 20:47
Sćll Guđmundur.
Gamli fjórflokkurinn mun aldrei breyta neinu í kvótamálum.
kv.Guđrún María.
Guđrún María Óskarsdóttir., 3.2.2009 kl. 23:36
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.