Fyrir mínum sjónum, færist fornöldin til tíða....

þar sem vógust fylkingar, vopnin kná að smíða....

Þetta er frampartur úr vísukorni þar sem ég man ekki lengur seinnipartinn en mönnum er velkomið að bæta við að vild.

Aðra vísu mína, man ég hins vegar sem er þessi.

 

Af hverju eru í sífellu, deilur manna í milli,

vantar okkur virkilega meira vit og snilli,

til þess að stjórna sjálfum oss og öllum vorum tólum,

til þess að fela landið þeim, börnum sem við ólum.

kv.Guðrún María.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Guðrún María.

Nú eru veður válynd.

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 05:46

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Aldrei meira en nú er þörf á að standa saman Gmaría mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.1.2009 kl. 08:52

3 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Flott hjá þér . kv .

Georg Eiður Arnarson, 22.1.2009 kl. 10:42

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

"Owners of capital will stimulate working class to buy more and more of expensive goods, houses and technology, pushing them to take more and more expensive credits, until their debt becomes unbearable. The unpaid debt will lead to bankruptcy of banks, which will have to be nationalized, and State will have to take the road which will eventually lead to communism."

Karl Marx, 1867

Þetta er aldeilis ótrúleg sýn og forspá  - og gildir greinilega ekki bara hér á grjóthrúgunni okkar fast upp við heimskautsbaug eftir fréttum undanfarinna daga að dæma. Gamall marxisti sem farin er að ryðga í fræðunum gæti átt það til að hugsa sem svo:

Með kúnstum þarf að klóna strax,
karl með svona skarpa sýn,
því endurgerð á öðrum Marx,
er nú orðin æði brýn.

Fékk þessa speki á e-mail í morgun. Datt í hug að þú hefðir gaman af þessari vísu. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 22.1.2009 kl. 15:12

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl öll, þetta var nú rítað áður en tíðindi næturinnar komu til sögu en stundum er einhver tilfinnig hjá manni fyrir þróun mála.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 23.1.2009 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband