Sé þetta löglegt, þá eru lögin ónýt.

Það kemur því miður æ betur í ljós yfirsýn stjórnmálamanna yfir fjármálaumhverfið var lítil ef einhver.

Hið meinta frelsi hefur nú vægast sagt snúist í helsi, þar sem hvorki viðskiptasiðferði eða samfélagsvitund virðast hafa verið meðferðis í viðskiptum hér á landi.

kv.Guðrún María.


mbl.is Vel gert við Al-Thani
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þór Jóhannesson

Hvernig er aftur viðkvæðið? "....og ólögum eyða!" - það er nákvæmlega það sem hér er að gerast og hverjir setja lögin? Ríkisstjórnin og hundarnir sem samþykkja þau gagnrýnislaust á Alþingi.

Ef Ólafur Ólafsson verður ekki handtekinn og hnepptur í gæsluvarðhald á næstu dögum er ég hræddur um að það fjölgi verulega í grímuklæddu liði aktivistanna á næstunni.

Þór Jóhannesson, 19.1.2009 kl. 02:20

2 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Sammála ykkur - ef þetta er rétt er allt uppi á borðinu - það er ekkert til sem heitir siðferði ef fréttin á við rök að styðjast - mér er ljóst að afturvirk lög má ekki setja við venjulegar aðstæður - það eru bara ekki venjulegar aðstæður -

AFTURVIRK LÖG OG FRYSTING ALLRA EIGNA ÚTRÁSARLIÐSINS - HVORT SEM UM ER AÐ RÆÐA WEST HAM - ÍBÚÐ Í NEW YORK - 6-800 VERSLANIR Í ENGLANDI - FJÖLMIÐLA Á ÍSLANDI - EÐA AÐRAR "EIGNIR ÞEIRRA" ÞÁ Á AÐ TAKA ALLT ÞAR TIL SKULDIR ÞEIRRA VIÐ LANDSMENN ERU GREIDDAR. það er gert við almenning og ég veit ekki betur en það sé jafnræðisregla Stjórnarskrárinnar sé enn í gildi.

Alla samninga sem útrásarliðið gerði síðustu 6-12 mánuði fyrir hrun og skerða greiðslugetu þeirra á að ógilda.

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur Ingi Hrólfsson, 19.1.2009 kl. 06:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband