Ný ríkisstjórn fyrir jól ?

Formaður Samfylkingarinnar virðist telja sig hafa komist í sæti einræðisherra hér á landi ef marka má ummælin, þar sem samstarfsflokknum eru sett fyrir niðurstaða í ákveðnu máli, ellegar komi til stjórnarslita.

Hér er ekki aðeins um að ræða fáheyrða vanvirðingu fyrir lýðræðinu heldur einnig algjöra vanvirðingu gagnvart samstarfsflokknum í ríkisstjórn sem hingað til virðist þó hafa látið ýmislegt yfir sig ganga þegjandi og hljóðalaust.

Það kæmi ekki á óvart að stjórnarslit lægju í loftinu.

kv.gmaria.


mbl.is Hótaði formaður Samfylkingar stjórnarslitum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Nú hleypur óskhyggjan með höfund þess pistils eins og oft áður...

Jón Ingi Cæsarsson, 14.12.2008 kl. 01:13

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll ert þú ekki í Íslandshreyfingunni ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 14.12.2008 kl. 01:17

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það sem Ingibjörg er að segja núna. er það sem mér hefur fundist liggja fyrir lengi og ætti því ekki að koma neinum á óvart. Þetta er rökrétt framhald af þeirri ákvörðun Sjálfstæðisflokksins að flýta landsfundi sínum. Svo eru fleiri og fleiri Sjálfstæðismenn að lýsa sig fylgjandi aðildarviðræðum. Það er auðvitað ekki það sama og  að þeir hinir sömu séu endilega fylgjandi aðild, eða öllu heldur hafi verið það.

Staðan hér er einfaldlega það mikið breytt að það er mikill ábyrgðarhluti að vera á móti því að skoða alla kosti í stöðunni. Og það er athyglisvert að nú virðist valið ekki standa um að vera með krónu eða ekki krónu. Heldur að taka upp aðra mynt og þá með hvaða hætti.

Á að taka hana upp með eða án baklands í erlendum Seðlabanka. Þetta er líka svo mikil spurning um tíma því vandi fyrirtækja og heimila er svo svimandi mikill að fólk er hreinlega skelfingu lostið. Það má segja að nú verði bara að frysta allar innheimtuaðgerðir meðan beðið er eftir því að vitræn ákvörðun um framhaldið verður tekin.

Ég tel  ráðherraskipti og kosningar séu einfaldlega eitthvað sem ekki er það brýnasta í bili.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 14.12.2008 kl. 01:22

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Hólmfríður.

Við þurfum síst af öllu ráðamenn sem ætla sér að taka það vald af þjóðinnni að ákveða sjálf um sín mál, og nú að beita þrýstingi til þess að þvinga samstarfsflokk til skoðanamyndunar.

Hafi menn einhvern tímann getað rætt um hneyksli á stjórnmálasviðinu þá er hægt að gera það núna.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 14.12.2008 kl. 01:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband