Jólastúss.

Ákvað að demba mér í minn árlega jólaundirbúning sem þýðir að búa til konfekt sem ég síðan set í öskjur og pakka inn í jólapakka og gef fjölskyldumeðlimum. Var ekki alveg viss hvort handleggurinn minn myndi duga þetta árið til þess að hnoða saman marsipan og gráfíkjur, en það hafðist.

Þessi konfektgerð þarf nefnilega nokkurt handafl og tennisolnbogi sem er í sjúkraþjálfun því afstætt hugtak í því sambandi.

Konfektgerðin hefur hins vegar komið í staðinn fyrir smákökubakstur sem allsendis er ekki mín sérgrein svo mikið er víst. Sonur minn ólst því upp við það að mamma " bakaði " konfekt fyrir hver jól nú í tæp tuttugu ár.

Set hér inn eina mynd af tilstandinu.R0010897.JPG

 

 

R0010901.JPG

Þessi tvö jólakerti eru kerti sem aðeins er kveikt á við konfektgerðina.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Namm . kv .

Georg Eiður Arnarson, 8.12.2008 kl. 21:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband