Frjálslyndi flokkurinn hefur lagt fram frumvarp um fá kvótann aftur til þjóðarinnar, einn flokka á Alþingi.

Einu raunhæfu umbreytingarnar út úr því ástandi sem okkar þjóðfélag á við að stríða, er finna í tillögum okkar Frjálslyndra um innköllun aflaheimilda nú.

Auðvitað höfum við ekki fengið umfjöllun sem skyldi í fjölmiðlum um það þingmál frekar en önnur mál sem flokkar í stjórnarandstöðu leggja fram á þingi, en ég hvet menn til þess að kynna sér einu vitrænu leiðina út úr þeim ógöngum sem fjármagnsbraskið í sjávarútvegi hefur leitt yfir þjóðina.

Ræddum þetta og margt annnað í opnu húsi hjá okkur Frjálslyndum í dag í Skúlatúninu, þar sem þeir Guðjón og Jón ræddu við flokksmenn.

R0010847.JPG

kv.gmaria.


mbl.is Kvótann aftur til þjóðarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heil og sæl; Guðrún María !

Þakka skyldi honum; helvítis flokks ræksninu.

Ekki seinna vænna; gerist þið málsvarar alþýðubyltingar, á þjóðernisgrundvelli, og hendið út ESB sinnum, eins og Jóni Magnússyni Brussel borgara og SUSara og Heimdellingi, og hans líkum, skal ég ég íhuga alvarlega, að styðja ykkur. 

Gerist þetta; fyrir 1. Desember, skal ég ég ganga til liðs við ykkur. Komdu þessu; til okkar ágæta spjallvinar, Sigurðar Þórðarsonar.

En; niður með Alþingi valdastéttarinnar, Guðrún mín.

Þá væri vel; um Íslands framtíð, líkast til !

Með baráttukveðjum, sem fyrr /

Óskar Helgi Helgason  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 03:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband