Jón Sigurðsson.

Tveir menn að nafni Jón Sigurðsson komu til umfjöllunar í Kastljósi kvöldsins, annar stjórnarformaður í Fjármálaeftirlitinu og hinn sem nafn á spólu á stálþráð sem fannst hjá Sálarrannsóknarfélaginu með upptökum af miðilsfundum fyrir mörgum árum.

Mér fannst viðtalið við stjórnarformann Fjármálaeftirlitsins ágætt þar sem sá hinn sami gerði skilmerkilega grein fyrir lögum er gilda og ákvarðanatöku af ýmsum toga í því sambandi.

Sú einkennilega tilviljun að hugsanlega hafi fundist upptaka þar sem Jón Sigurðsson hinn eina sanna sjálfstæðishetja Íslendinga komi fram á miðilsfundi á sama tíma og flokkakerfið í landinu er upptekið af því að róa öllum árum til Brussel, finnst mér ekki síður merkileg tilviljun.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæl Guðrún. Held að þjóðhetja vor Jón Sigurðsson sé ekki skemmt í
dag og hafi af þjóð sinni miklar áhyggjur.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 20.11.2008 kl. 21:57

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Það væri nú ekki óhugsandi Guðmundur.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 21.11.2008 kl. 01:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband