Landsamband kvenna í Frjálslynda flokknum, súpufundur með Jóni Baldvin og Skúla, um Ísland og Esb, kosti og galla.

Minni á súpufundinn á laugardag og set hér inn fréttina af xf.is.

 

 "

Súpufundur Landssambands kvenna í Frjálslynda flokknum verður haldinn laugardaginn 18. október n.k. kl. 12.00 í Skúlatúni 4, 2 hæð.
Fyrirlesarar eru Jón Baldvin Hanniblasson fyrrv ráðherra sem fjallar um Ísland og ESB.
Skúli Thoroddsen framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins fjallar um fiskveiðisefnu Evrópusambandsins.
 
Nú er tækifærið fyrir flokksmenn að fjölmenna og kynna sér málið og bera upp fyrirspurnir. "

 Allir velkomnir.

kv.gmaria.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heil og sæl; Guðrún María, og aðrir skrifarar og lesendur !

Trúi ekki; fyrr en ég tek á, að þið konur í FF,  farið að bjóða þessum ómerkilegu útsendurum Barrosos, á súpufund, hjá ykkur, í ljósi aðfarar ''vina'' bandalags, þeirra Jóns Baldvins og Skúla, að Íslendingum og íslenzkum hagsmunum, hvað er að eiga sér stað, þessa dagana.

Með beztu þjóðernissinna kveðjum, sem fyrr /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 01:33

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Óskar.

Sjálf er ég einlægur andstæðingur aðildar að Evrópusambandinu, en jafnframt talsmaður virðingar fyrir lýðræði og skoðanaskiptum um mál öll í voru þjóðfélagi , þar sem menn hafa vettvang til að skiptast á um öndverð sjónarmið hvarvetna.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 17.10.2008 kl. 01:58

3 identicon

Heil og sæl; á ný, Guðrún mín !

Gildir mig; sem aðra Íslands vini einu. Vita skulum við; að þrátt fyrir ósvífni Brown´s, á dögunum, á þetta ESB hörmungar bandalag sér enn, málsvara, meðal okkar.

Þar af; brennur reiði mín, sem gremja, í garð þessarra manna.

Og munum; ESB og Bandaríkin eru ekki öll þar, sem þau eru séð, Guðrún mín.

Met samt mikils; trúfesti þína, við sjálfstætt og fullvalda Ísland.

Með beztu kveðjum, sem jafnan /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 02:11

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Kæri Viðar.

Þetta er einn fundur, við munum funda aftur um þetta málefni.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 17.10.2008 kl. 23:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband