Guðjón Arnar Kristjánsson á stuðning allra í flokknum.

Mín skoðun er sú að svo lengi sem Guðjón Arnar vill sitja sem formaður muni flokksmenn styðja hann til þess, og að lesa frétt eins og þessa sem og alls konar samsæriskenningar um eitthvað annað svo sem valdayfirtöku einhverra einhvers staðar, er eitthvað sem hentar mállfutningi annarra en flokksmanna Frjálslynda flokksins.

Það er ódýrt að hoppa í skotgrafir og týna til samsæriskenningar Margrétar Sverrisdóttur um einn mann og " hans fólk " sem upphaf og endi alls hins illa sem komið gæti fyrir Frjálslynda flokkinn, það stenst ekki.

Það er þingflokksins og flokksforystu fyrst og fremst að fást við deilur millum þingmanna um þingflokksformennsku.

Deilur um framkvæmdastjórastöðu í flokknum hafa því miður æ ofan í æ komið á daginn frá upphafi stofnunar hans og þangað skyldi margra skýringa um deilur að leita.

kv.gmaria.

 


mbl.is Illvígar deilur Frjálslyndra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Kristinn H. Gunnarsson stefnir á að verða næsti formaður Frjálsllyndaflokksins.Guðjón A. styður hann í því.Svo þeir sem vilja ekki Kristinn H sem formanns verða að halda sínu striki ef flokkurinn á ekki að leggjast af í næstu kosningum.Bæði Kristinn og Guðjón eru menn gamalla tíma með enga stefnu. Þeir eru einfaldlega út brunnir. Fólk verður að horfast í augu við það. Upp er runnin 21. öldin. Áfram Frjálslyndiflokkurinn.

Sigurgeir Jónsson, 24.9.2008 kl. 09:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband