Samfylkingin er enn sem áður, skoðanalaus um íslenskan sjávarútveg.

Frá upphafi hefur Samfylkingin algjörlega komið sér hjá því að ræða málefni sjávarútvegs hér á landi og þá hina afar mörgu annmarka núverandi kvótakerfis.

Flokkurinn var með hugmyndir um fyrningar aflaheimilda í farteskinu í kosningunum 2003, sem þá voru út úr kú. Í kosningum 2007 var um nær algjört skoðanaleysi að ræða, og flokkurinn hefur frá upphafi komið sér hjá því að ræða þessi mál sem ekki hvað síst varða landsbyggðina.

Það virðist því að Samfylking sé samferða Sjálfstæðisflokknum í varðstöðu um kerfi sem meirihluti landsmanna er andvígur og hefur ekki skilað upphaflegum árangri í áratugi.

Skuldir sjavarútvegsfyrirtækja í bönkum og hækkandi olíuverð stórútgerðar sem meðal annars hefur reifað það að nota segl til að fleyta fleyjum sínum hefur ekki vakið athygli þessa flokks.

kv.gmaria.


mbl.is Ekki meiri bankabónus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Rut

Þeir hafa sig hægt enda hræddir um að verða hent fyrir borð.

Halla Rut , 3.9.2008 kl. 20:57

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæl Guðrún.

Samfylkingin hefur þó skoðun á einu. Er samþykk því að veita
útlendingum kvótann á Íslandsmiðum um leið og við göngum í ESB.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.9.2008 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband