Forsætisráðherra fer tæpa hálfa öld aftur í tímann í samanburði..... !

Halló, engin framþróun öll þessi ár, eða hvað ?

 Varð ekki til hlutabréfamarkaður hér á landi ?

Voru bankar ekki seldir úr ríkiseigu ?

Og hvað svo.... ?

Var heimild til fiskveiða gerð að söluvöru á þurru landi ?

Kvótasetning á mjólk ?

Fóru sjávar og sveitaþorp vel út úr því ?

Hefur orðið framþróun í sjálfbærni einnar þjóðar við meint markaðsskipulag eða ekki ?

Er þetta ef til vill " hagfræði sem ekki kann að tala " ?

 

kv.gmaria.

 

 

 


mbl.is Forsætisráðherra bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Heyr!

Árni Gunnarsson, 18.6.2008 kl. 00:04

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir það Árni.

góð kveðja.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.6.2008 kl. 00:07

3 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Getur alveg verið að maður fórni eins og einni bloggfærslu á þessa ræðu Haarde. Er þó ekki viss, því það þarf ekki mikið til að spá fyrir um það sem þegar er skeð.

Gestur Guðjónsson, 18.6.2008 kl. 00:08

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já Gestur , það er rétt, en endilega reyna að fá menn upp úr hjólförum fortíðar he he...

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.6.2008 kl. 00:12

5 identicon

Heil og sæl; Guðrún María og aðrir skrifarar !

Heyr; fyrir þessarri ágætu færzlu. Rétt; að minna á örlög Fjárfestingabanka atvinnulífsins, svo aðeins eitt dæmi enn, sé tekið.

Með beztu kveðjum, sem jafnan / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 00:27

6 Smámynd: Andrés Magnússon

Ætli það hafi breyst mikið frá upphafi Íslandsbyggðar, að við þurfum að vinna okkur út úr vandanum? Hvað þá á 39 árum. Ég hygg að þau hollráð standi enn, líkt og brýningin um að menn láti ekki hugfallast, sitji ekki aðgerðalausir og bíði þess sem verða vill. Eða að aðrir leysi vandann.

Andrés Magnússon, 18.6.2008 kl. 00:40

7 identicon

Komið þið sæl; að nýju !

Andrés ! Rétt; að minna þig á, að fyrir tilverknað óhæfra stjórnmálamanna er svo komið, hverju raun ber vitni.

Það eru ómerkingar þeir, sem vendilkrákur, sem með lands''stjórnina'' hafa farið, sem ábyrgðina bera, og ættu að hljóta þá meðferð, sem þeim hæfir. Rasphúsvinnu, það sem eftir lifir, þeirra aumu æfiskeiða.

Með sæmilegum kveðjum, á ný / Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 01:36

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sagði ekki forsætisráðherrann DO einhverntíma að ekki væri hægt að tala niður krónuna, nú er Geir að reyna hið ómögulega tala hana upp. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.6.2008 kl. 09:40

9 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Guðrún það hefur einhver gaukað þessu ártali 1969 að Geir og hann hefur ekkert haft fyrir því að fara yfir staðreyndir s.s. að þorskafli var það ár liðlega 400 þúsund tonn og að það var árið áður 1968 sem það dróg mjög úr síldveiðum.

Sigurjón Þórðarson, 18.6.2008 kl. 10:56

10 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Góð færsla Guðrún !

Kveðja.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 18.6.2008 kl. 19:17

11 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir ykkar ágætu athugasemdir bloggfélagar.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.6.2008 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband