Frjálslyndi flokkurinn ályktar um matvælafrumvarpið.
Miðvikudagur, 21. maí 2008
Set hér inn ályktun þingflokks Frjálslynda flokksins um matvælafrumvarpið sem er nú í þinginu.
af xf.is.
"
20. maí 2008 15:17 |
Ályktun þingflokks Frjálslynda flokksins um matvælafrumvarpið |
Þingflokkur Frjálslynda flokksins leggst gegn því að matvælafrumvarpið verði afgreitt á vorþingi. Málið er óvenjulega viðamikið og Alþingi þarf mun lengri tíma en gefist hefur til þess að fara vandlega yfir frumvarpið og leggja mat á áhrif þess á framkvæmd heilbrigðiseftirlits, framleiðslu og úrvinnslu á landbúnaðarvöru og verðlagi á þeim. Þingflokkurinn leggur þunga áherslu á að í engu verði hvikað frá reglum sem eiga að koma í veg fyrir að sjúkdómar berist til landsins. |
Fyrir liggur það mat hagsmunaaðila að samþykkt frumvarpsins muni leiða af sér vaxandi innflutning á kjötvörum sem leiði síðan til verulegrar fækkunar á störfum í framleiðslu og úrvinnslu. Nákvæmar tölur þar um liggja ekki fyrir en talið er að fækkun starfa geti munið nokkrum þúsundum. Sambærilegur samdráttur er fyrirsjáanlegur í framleiðslu og vinnslu innlendra mjólkurafurða komi til innflutnings á þeim vörum,sem telja verður óhjákvæmilegt í kjölfarið af breytingunni á kjötvörunum. Farið er þess á leit við stjórnvöld að Byggðastofnun verði falið að meta áhrifin á atvinnumál af innflutningi landbúnaðarvöru og að það mat liggi fyrir áður en að frumvarpið verði tekið til lokaafgreiðslu á Alþingi. Loks bendir þingflokkurinn á að skortur er á samkeppni á íslenskum matvörumarkaði og það mun óhjákvæmilega leiða til þess að innflutningur og sala á erlendri ódýrri kjöt- og mjólkurafurða ryðji innlendri framleiðslu út af markaði án þess að varanleg verðlækkun verði í kjölfarið. Nýleg lækkun virðisaukaskatts á matvæli kom neytendum til góða aðeins um skamman tíma en er nú horfin í vasa smásalanna og staðfestir varnarleysi almennings gagnvart fákeppninni á íslenskum matvörumarkaði. Innflutningur án virkrar samkeppni er bein ávísun á aukinn gróða fárra smásöluaðila á kostnað neytenda. Við þessar aðstæður er fráleitt að opna fyrir innflutning á kjöt- og mjólkurvörum.
|
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.