Er hér á ferð tilraun til þess að troða löggjöf Evrópusambandsins yfir Íslendinga, með hraði ?

Ég hef enn ekki séð forsendur þess að innleiða þurfi matvælalöggjöf ESB hér á landi nú, löggjöf sem inniheldur án efa all mikinn kostnað eingögnu vegna skriffinsku, svo ekki sé minnst á þá óvissuþætti sem lúta að heilbrigði, forsendum og tilvist landbúnaðar í landinu sem hefur átt í vök að verjast ef eitthvað er með því skipulagi stjórnvalda sem verið hefur við lýði.

Málið allt virðist illa undirbúið og aðilum gefinn lítill frestur til þess að skila umsögnum um þennan umsvifamikla lagabálk.

Það væri mjög þarft verkefni fyrir fjölmiðlamenn að kanna hvaða nauðsyn ber til þess að innleiða þessa löggjöf hér nú um stundir sem sannarlega setur íslenskan landbúnað í óvissu.

kv.gmaria.

 


mbl.is Allir telja eðlilegt að fresta afgreiðslu frumvarpsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sær Guðrún.

Það er ekkert sem rekur á eftir að þessi lög verði lögfest á nætunni.
Alla vega þarf að skoða þau miklu miklu betur því miklir hagsmunir
eru í húfi, ekki síst atvinna þúsunda manna og grunnhagsmir margra
byggðalaga. Bara skil alls ekki hvað landbúnaðarráðherra er að fara.
Virðist ekki nóg að rústa heilu sjávarþorpin, heldur þurfa heilu
sveitirnar og bæjarfélögin þeim tengd að fara sömu leið. Allt út af
einhverju misskildu reglufargani frá Brussel... Þessari ríkisstjórn
er ekki sjálfráatt! 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 16.5.2008 kl. 21:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband