Upplýsa þarf neytendur um hvaða matvara til sölu í landinu er erfðabreytt.

Hefur einhver séð óeðlilega stórar appelsínur eða aðra ávexti á boðstólum hér á landi ?

Er fólki kanski alveg sama hvað það kaupir ef það er nógu ódýrt ?

Hvers vegna hafa óskir komið fram um innflutning á fósturvísum úr norskum kúm, nema til þess að reyna að stækka íslenska kúakynið og búa til ofurstórar beljur sem framleitt geti hugsanlega meiri mjólk per einingu en fleiri minni.

Um þetta snýst málið all nokkuð í heild, hin kalda markaðshagfræði snýst einungis um það að framleiða nógu mikið magn per einingu í einu á öllum sviðum hvarvetna.

Gæði og hollusta lenda að hluta til utangarðs í umræðu um nógu ódýr matvæli í nógu miklu magni sem einhver getur grætt nógu mikið á að framleiða eða flytja milli landa.

Þá kröfu hlýtur að þurfa að gera til stofnanna hins opinbera hér á landi að þau hin sömu standi að gæðamati á hollustu vöru til sölu á íslenskum markaði að teknu tilliti m.a. til þess hvort viðkomandi matvæli séu framleidd með erfðabreytingum.

kv.gmaria. 


mbl.is Erfðabreytt á borðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú segir nokkuð Gmaría, ég hef ekki hugleitt þetta með risaávexti, að það geti átt sér dökkar hliðar.  En ég tek undir áskorun þína.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.5.2008 kl. 23:40

2 Smámynd: SeeingRed

Tékkaðu á þessu fyrirtæki, ansi vafasamt svo ekki sé meira sagt...sumir telja það jafnvel eitt hættulegasta fyrirtæki í heimi hvorki meira né minna.

SeeingRed, 16.5.2008 kl. 19:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband