Hve lengi ætla stjórnvöld að ofbjóða almenningi í landinu ?

Á sama tíma og efnahagsþrengingar ganga yfir þjóðina sýna ráðamenn sig í útlöndum annan hvern dag, hver um annan þveran, meira segja sitt hvor formaður sitt hvors ríkisstjórnarflokks á sama stað með stuttu millibili.

Sé hér um að ræða sjónarspil við þáttöku í framboði til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þá er slíkt óverjandi gagnvart skattgreiðendum.

Sé hér um að ræða tilraun til þess að þykjast vera að semja sig inn í ESB þá er þar á ferð virðingarleysi við íslenska þjóð.

Sé hér um að ræða forgangsröðum á vettvangi stjórnmála við stjórn ríkisiins, þá hefur eitthvað mistekist við forgangsröðun þessa sökum þess að þessir aðilar eru kjörnir til að stjórna hér á landi og þurfa af þeim sökum að vera heima til þess arna.

Ferðalög og flakk um heiminn sem orsakar ónóga yfirsýn innanlands, á innanlandsmál, af hálfu sitjandi stjórnvalda hverju sinni er eitthvað sem kjósendum líður ekki úr minni.

kv.gmaria.

 


mbl.is Utanríkisráðherra fundaði með breskum ráðamönnum í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mér sýnist þau hafa gengið fram af flestu hugsandi fólki.  Og svo er hamrað á Ólafi F. endalaust svona eins konar smjörklípa.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.5.2008 kl. 09:27

2 identicon

Kæri Bloggvinur Herberts! Ég leita til þín í von um að þú getir hjálpað mér. Maðurinn minn, Herbert Fr. Stefánsson, hefur ekki sést síðan á föstudaginn fyrir helgi og við erum orðin frekar hrædd um hann. Ég kemst ekki inn á bloggið hans sem er hebbifr.blog.is, og bið því bloggvini hans um hjálp að láta þetta berast ef einhver skyldi hafa séð hann. Netfangið okkar er hebbiogsilla@gmail.com með fyrirfram þökkum Sigurlaug Helgadóttir Eggerz

Sigurlaug Helgadóttir Eggerz (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband