Frelsi einstaklingsins til athafna á Íslandi.

Er frelsi manna til þess að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa eins og stjórnarskrá landsins kveður á um ,hamlað í formi þess skipulags sem við lýði er Í heilu atvinnugreinunum ?

Fyrrum aðalatvinnugreinar þjóðarinnar landbúnaður og sjávarútvegur geta ekki státað af nýliðun í greinum  þrátt fyrir öra þróun matvælaiðnaðar.

Einhliða áhorf sitjandi ráðamanna við stjórnvölinn á stærðarhagkvæmni undir formerkjum fyrirtækjareksturs og verksmiðjuframleiðslu  án áhorfs á heildarmyndina og mikilvægi þess að nota og nýta einstaklingsframtak í smærri einingum samhliiða, ber vott um forsjárhyggju og miðstýringu sem aðrar þjóðir hafa afagt í skipan mála.

Einhliða áhorf á stærðarhagkvæmni eingöngu er fyrrum verksmiðjubúskapur í ríki kommúnisma sem við lýði var í Ráðstjórnarríkjum og með ólíkindum að menntun og þekking áskapi slíkar aðferðir við skipulag mála, með verðmætasóun sem í því felst að tapa fólki úr atvinnugreinum með reynslu til starfa og leggja hluta lands í auðn meðan eitt samfélag þróast i borgríki á litlum skika lands.

Frelsi einstaklingsins verður ekki til undir verndarvæng þeirra sem kjósa að viðhafa slíkt skipulag heldur nær óbrúanleg gjá milli fyrirtækja og einstaklinga í landinu þar sem þeim síðarnefndu hefur verið hamlað atvinnuþáttöku undir formerkjum stærðarhagkvæmni eininga allra.

kv.gmaria.

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Orð í tíma töluð.  Mjög góð grein.  Þakka þér kærlega fyrir.

Jóhann Elíasson, 29.4.2008 kl. 11:05

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir það Jóhann.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 30.4.2008 kl. 02:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband