Munar bara mánaðarlaunum verkamannsins.

Hvetji stjórnvöld almenning í landinu til ráðdeildar og sparnaðar á tímum þrenginga þá er afskaplega gott að sýna fordæmi fyrir slíku.

Ef stjórnvöld eru farin að bera sig saman við markaðsmógúla í ferðum á einkaþotum þvert og endilangt um heiminn sem fordæmi fyrir hið opinbera, þá er illa komið.

Það vill svo til að 100-200 þús krónur eru laun hins almenna verkamanns en skattaka af launum hefst við krónur 90.000.- í skattkerfi stjórnvalda.

kv.gmaria.

 


mbl.is Munaði 100-200 þúsund krónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Geir og Ingibjörg eru komin langt frá hinum almenna manni á Íslandi í dag.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2008 kl. 00:26

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Cesil.

Já það virtist ekki vandamál hjá meintum jafnaðarmönnum þessa lands að hoppa upp í vagn vitundarleysis valdhafa sem steinsofnað hafa með valdasprotann í hendi.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 3.4.2008 kl. 00:31

3 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Sammála Geir um að þetta er stormur í vatnsglasi hjá fólki með smásálarlegan hugsunarmáta. Þetta sparar hátt í sólarhring í tíma og þetta eru fjórtán manns. Reiknið þið svo hvort að það sé ekki betra að þau séu lengur í vinnunni sinni við að stýra þjóðarskútunni.

Gunnlaugur B Ólafsson, 3.4.2008 kl. 00:42

4 identicon

Ert þú að bera saman ráðamenn þjóðarinnar og einhverja verkamenn??? Finnst þér ekki starf okkar ráðamanna fyrir þjóðina verðskulda hærri standard en það sem sá lægst hlítur?

Þetta er ástæðan fyrir hvers vegna sumir stjórna og hafa alm laun en aðrir verkamannavinnast og hafa drullu léleg laun og kvabba og kvabba og gera ekkert í því að koma sér upp úr drullunni nema að kvabba......í því eru þeir góðir. Þess vegna eru þeir verkamenn og við miðum ekkert neitt við þánema hvað hann er lengi að grafa eina holu. Í því getur hann verið góður.....

pétur (IP-tala skráð) 3.4.2008 kl. 01:10

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Gunnlaugur.

Er það smásálarlegur hugsunarháttur að velta fyrir sér upphæðum sem nema 100 -200 þús krónum ?

Ef allir ráðamenn hefðu sama hugsunarhátt varðandi nákvæmlega þetta hið sama atriði, hve háar upphæðir kynnum við þá að vera að tala um ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 3.4.2008 kl. 01:18

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll pétur.

Ég er að bera saman mánaðarlaun verkamanna sem greiða skatta í þessu landi og þann sparnað sem sitjandi ríkisstjórn telur skipta máli í ferðalögum á vegum íslenska ríkisins.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 3.4.2008 kl. 01:24

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessi rök með það að þetta lið "spari" eina nótt í gistingu og geti þar af leiðandi sinnt stjórn landsins betur, eru vitlausustu rök sem nokkur hefur komið með.  Hver er árangurinn hingað til, ekki verður betur séð en það skipti afskaplega litlu einn eða tveir dagar til eða frá.

Jóhann Elíasson, 3.4.2008 kl. 13:42

8 identicon

Sæl María aftur. Ég hreinlega skil ekki hvað þú ert að segja. Sumir starfskraftar í þjóðfélaginu skila verðmætum til þjóðarbúsins á einum degi það sem aðrir skila á einum mánuði. Þess vegna er hver dagur dýr fyrir dýrmæta starfskrafta og því mikils virði. Það er því miður ekki hægt að miða neitt við laun skúringakonu á Lansanum. Hún ein verður að svara því til hvers vegna lífið skilaði henni þar sem hún er. Sumir hafa barist fyrir meiri frama en hún....með kjafti og klóm, svita og og tárum í mörg ár og þetta fólk krefts þess að það sé ekki verið að bera það saman við fólk sem aldrei hefur neitt lagt á sig, með fullri virðingu fyrir þeim. Það hefur aldrei verið erfitt að vinna sig upp frá botninum á Íslandi ef maður nennir að leggja það á sig.....

pétur (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 01:20

9 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll aftur petur.

Þú fyrirgefur, get með engu móti séð hvað þetta sem þú nefnir hefur með það að gera, hvort sparnaður per krónu er sparnaður eða ekki.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 4.4.2008 kl. 02:10

10 identicon

Þessi síðasta athugasemd þín Guðrún María staðfestir það sem Pétur er að reyna að segja þér.

Það felst sparnaður í því að flýta för verðmætra starfsmanna en ekki þessara ódýru. Þetta kann að hljóma skítt sérstaklega í eyrum þessARA ódýru en þetta er bara svona.

Skolli (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 12:23

11 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Skolli.

Verðmæti starfsmannsins í þessu sambandi skiptir ekki máli heldur ferðakostnaðurinn og það aðtriði að hver og einn velji ódýrustu leiðina.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 4.4.2008 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband