Landið allt þarf að byggja, nota og nýta.
Miðvikudagur, 2. apríl 2008
Það á ekki að þurfa að vera til staðar togstreita millum þeirra sem búa í höfuðborg og þeirra sem búa í dreifðari byggðum lands einfaldlega vegna þess að íbúar beggja svæða greiða sameiginlega skatta og skyldur í einn sjóð.
Uppbygging samgangna í takt við tímann er eðlileg þjónusta hins opinbera hvar sem er, en atvinnumöguleikar og tækifæri eru háð því að sitjandi stjórnvöld skapi skilyrði fyrir aðkomu manna að slíku í sínu skipulagi um land allt.
Hinar dreifðu byggðir landsins hafa mátt þola alls konar misvitrar aðferðir undir formerkjum meintrar hagræðingar i sjávarútvegi og landbúnaði undanfarna áratugi þar sem áhorf á allt að því verksmiðjubúskap til lands og sjávar hefur verið það eina sem stjórnvöld hafa eygt sýn á.
Þessi einhliða sýn stjórnvalda á atvinnuskipulag án endurskoðunar þess hins sama hefur ekki skilað tilætluðum árangri og báðum kerfum hinna gömlu atvinnuvega þarf að breyta svo aðkoma einstaklingsframtaks fái notið sín og verðmæti í formi lands og samgöngumannvirkja, skóla og heilsugæslu njóti jafnræðis um land allt.
Handapataúrlausnir til þess að taka á vanda hér og þar, sitt á hvað sem verið hefur viðkvæði stjórnarstefnu undanfarinna áratuga er engin framtíðarsýn því fer svo fjarri.
Frelsi einstaklingsins á að vera hið sama um land allt.
kv.gmaria.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það gleymist líka að ræða við heimamenn, og skoða hvað brennur mest á þeim. Nei það koma hugmyndirnar frá SAS eins og við kölllum sérfræðinga að sunnan.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.4.2008 kl. 15:01
Mikið kannst ég við þetta Ásthildur sem sveitarstjórnarmaður í nokkur
ár fyrir vestan. Verst er þó þegar koma hugmyndir, þeim er mótmælt,
en ekkert er hlustað á sjónarmið heimamanna um hvað þeir hafa til
málana að leggja.
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.4.2008 kl. 21:46
Ásthildur, eru þessir SAS menn ekki allir ættaðir utan af landi ? Mér finnst allavega annar hver maður hér fyrir sunnan monta sig af því að vera ættaður héðan og þaðan, það þykir ekki fínt að vera bara úr Reykjavík.
Þeir sem réðu mestu hér á síðustu öld eru svo í ofanálag nær allir Vestfirðingar, Steingrímur Hermannsson, Sverrir Hermannson, Hannibal Valdimarsson, Jón Baldvin, Einar K. Guðfinnsson, Einar Oddur og svona mætti lengi telja.
Þóra Guðmundsdóttir, 2.4.2008 kl. 22:58
Við greiðum ekki öll í sama sjóð, vegna þess að við borgum til þess sveitarfélags sem við búum í og svo fær ríkið sitt.
Mín skoðun er sú að færa skólana yfir til sveitafélaganna var slæmt, því sum sveitarfélög hafa ekki efni á að reka "góðan" skóla eða að reka skóla yfirleitt.
Það er rétt að margar skyndiákvarðanir eru teknar sem eru alls ekki í takt við tímann á hverjum stað. Íslendingar hafa aldrei getað unnið neitt fyrirbyggjandi eða varanegt, vi virðumst hrærast mest í skyndiákvörðunnum.
Svo er það sem gildir með alla þá sem að komast til valda, það er að hugsa um eigin hag, vina og vandamála fram yfir allt annað.
Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 2.4.2008 kl. 22:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.