Stjórnar markaðurinn Íslandi eða menn í ríkisstjórn landsins ?

Algjört andvaraleysi og skortur á vitund fyrir afkomu almennings í landinu einkenndi svör forsætisráðherra í viðtali í sjónvarpi í kvöld. Sá hinn sami kallaði hugsanlega 60 þúsund króna aukningu útgjalda heimila í landinu vegna efnahagsástandsins  " SNERTILENDINGU " .

Hvílik firring !

Telja menn virkilega að hægt sé að láta reka á reiðanum og bíða eftir gjaldþrotum heimila sem hugsanlega hafa þurft að horfa í nokkurra þúsunda aukningu milli mánaða sem nægilegt vandamál í mörg herrans ár hins meinta góðæris sem aðeins hluti landsmanna hefur orðið var við.

ER það peningamagn í umferð og þróun  þess sem ræður ferð í einu samfélagi án þess að sitjandi aðilar við stjórnvölinn telji sig þurfa að taka ákvarðanir lengur ?

Gera ráðamenn sér ekki grein fyrir því að aðeins almennar skattalækkanir hins opinbera eru eina andsvarið sem stjórnvöld hafa í hendi sinni ?

Eftir hverju eru menn að bíða ?

kv.gmaria.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband