Íslendinga vantar engar myndbirtingar vegna tjáningafrelsis.

Ég er sammála Salman Tamini og því sem hann sagði í Kastljósi kvöldsins.

Mér er óskiljanlegur tilgangur þess efnis að birta myndir sem særa kunna trúarvitund einhverra ?

Til hvers ?

Eru menn eins og Illugi að reyna að slá sig til riddara meints tjáningafrelsis ?

Er þörfin til að ganga út að öfgum án sýnilegs tilgangs leiðarljósið ?

Hvað varð af siðvitinu ?

spyr sá sem ekki veit.

kv.gmaria.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

En Guðrún. Kom skýrt fram hjá Illauga að hér eru ALLS ENGAR SKOPMYNDIR að ræða af  spámanninum. Bara ofur venjulegar teikningar með fullri virðingu fyrir honum EINS OG MÚSLIMAR SJÁLFIR
hafa teiknað hann. Við eigum ÓTAL myndir af t.d okkar Jesú Kristi, í ÓTAL
GERÐUM, m.a skopmyndir. Þó er hann sagður SONUR GUÐS en Muhammed ekki í íslam, heldur spjámaður.

Þannig bara finnst EKKERT athugavert við þetta. Það að birta
mynd er bara hluti af okkar VESTRÆNU TJÁNINGARFRELSI sem
OKKUR BER SKYLDA TIL AÐ STANDA VÖRÐ UM ! Og það HEILLÖG
SKYLDA!!! 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 19.3.2008 kl. 01:25

2 identicon

Heil og sæl; Guðrún María og aðrir skrifarar !

Guðmundur Jónas ! Tek undir hvert orð; með þér. Þetta slekti (Múhameðstrúarmenn) geta verið heima, hjá sér, geti þeir ekki mannað sig upp í, að aðlagast íslenzkum venjum, sem kreddum.

Sæi fyrir mér; okkur, fara að þenja okkur, við þetta ágæta fólk, í þeirra heimalöndum, og vilja ráðskast, með þeirra staðhætti.

Er það kannski stefna Frjálslynda flokksins, að gefa þessu ágæta fólki, einhverja afslætti, á íslenzkum siðum; sem ósiðum, Guðrún María ? Er ekki nóg, að hinir flokkarnir geri það, til þess að þóknast einhverju heimsku rugli, sunnann frá Arabíu skaga ?

Það er ekki öll andskotans vitleysan eins, Guðrún mín !

Með beztu kveðjum, sem jafnan / Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 01:35

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sælir herramenn.

ÉG mæri ekki að mér finnst afar kjánalegar tilraunir íslenskra blaðamanna til að vekja athygli á sjálfum sér með þessu móti.

Nota bene sömu manna og sátu sem rítstjórar í tegund ákveðinnar blaðmennskutísku þess efnis að ganga fram af fólki með myndbirtingum af Íslendingum og einhliða frásögnum að virðist með það að markmiði að auka sölu og fá viðbrögð til baka.

Slík tegund blaðamennsku er farinn að snúast um annað en tilgang sinn, því miður.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 19.3.2008 kl. 01:49

4 identicon

Sæl, heiðursfrú !

Hygg; að meining okkar Guðmundar Jónasar hafi snúið, að því grundvallar atriði, hvort þessi ágæti Filistei (Palestínumaður), Salmann Tamimi, ætti að fara að setja einhverjar reglur um, hvort þetta blaðið eða hitt, birti einhverjar greinar (með, aða án mynda), en ekki; um ''kjánalegar tilraunir íslenskra blaðamanna'', eða þá fortíðar Illuga Jökulssonar, sem ritstjóra, eða annars.

Hljótum; að geta haldið umræðunni, í því samhengi, sem við Guðmundur lögðum upp með, Guðrún mín.

Ítreka enn; þessu ágæta fólki Salmanns, sem honum sjálfum,  er frjálst að fara, í friði, héðan frá Íslandi, sé því ómögulegt, að aðlagast okkur.

Með beztu kveðjum, enn / Óskar Helgi Helgason     

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 02:03

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll aftur Óskar Helgi.

Það er blaðið sem ákveður að birta mynd af spámanninum þótt slík myndbirting stangist við trúarvitund þeirra sem trúa á hann.

Blað sem ég hef aldrei heyrt um fyrr en í kvöld.

Þessi myndbirting hefur ekkert með aðlögun fólks að samfélaginu að gera, ekkert.

Það eina sem Salmann benti á var það að þetta særði trúarvitund þessa hóps, og hvers vegna í ósköpunum þurfum við að vera að því ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 19.3.2008 kl. 02:23

6 identicon

Heil og sæl á ný;  Guðrún María !

Kann að vera; að þú sért að misskilja okkur Guðmund Jónas ?

Svo ekkert fari á milli mála; að þá skulu þeir Múhameðsku hafa sig á brott, geti þeir ekki sætt sig við okkar fyrirkomulag, hvar kristni er jú ríkjandi, að mestu, hér heima á Íslandi. Við þurfum ekkert, að taka tillit til Mekku dellunnar, þér að segja.

Kynnum við ekki betur að meta, sem fyrr, spangól íslenzka fjárhundsins, fremur en góli einhverra kallara skratta, úr bænaturnum Múhameðskra ? Hygg; að ég svari fyrir yfirgnæfandi meirihluta Íslendinga. Auðvitað eru einhverjir sveimhuga kjánar, meðal okkar, sem láta sér íslenzkt þjóðerni, sem þjóðhætti engu skipta, og vilja opna landið upp á gátt, fyrir einhverri útlendri dellu, af misskildum ''fjölmenningar'' ástæðum. Kjánar hafa alltaf verið til, og svo mun enn verða, um hríð.

Svo einfalt er það, Guðrún mín.

Með beztu kveðjum, sem oftar / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 11:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband