Nýtt ár, nýrra vona og væntinga.

Dagurinn er tekinn að lengjast skref fyrir skref , og blessuð birtan er okkur Íslendingum von um betri tíð með blóm í haga.

Á sviði stjórnmálanna er það nú enn Akkilesarhæll þriggja starfandi stjórnmálaflokka sem komið hafa að stjórn landsins að ekki skuli hafa farið fram nauðsynleg endurskoðun stórnkerfis fiskveiða við landið.

 Nýr formaður Framsóknarflokks lét þess getið í Kryddsíldinni að hann væri tilbúin til þess að mynda bandalag til endurskoðunar fiskveiðstjórnunarkerfisins, við Guðjón Arnar Kristjánsson formann Frjálslynda flokksins.

Það er vel, því batnandi mönnum er best að lifa.

Mótvægisaðgerðapakki núverandi samsuðu Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks er óútfylltur tékki til handa skattgreiðendum í kerfi sem átti að heita frjálst markaðskerfi og hefur í orði kveðnu ætíð verið um rætt sem slíkt en mótvægisaðgerðir  nú eru álíka gengisfellingum á árum áður, nákvæmlega sami pakkinn.

Kerfið fellur því í raun sjálfkrafa um sjálft sig með slíkum aðgerðum sitjandi valdhafa, sem markaðskerfi.

Von min er sú að  menn eygi það nú loks að kerfið þurfi að endurskoða.

kv.gmaria. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jú Guðrún. Hnaut um þessa yfirlýsingu Guðna eins og þú um að hann sé tilbúinn  til meiriháttar samstarfs við Frjálslynda um endurskoðun fiskveðistjórnunarkerfisins. Hef ætíð verið hliðhollur
ykkar sjónarmiðum í þessum málum og tel Framsókn eiga að söðla um
og taka upp gjörbreytta stefnu hvað þetta varðar. Enda talað fyrir
miklu pólitisku samstarfi Framsóknar og Frjálslynda í íslenskum
stjórnmálum, enda báðir flokkar þjóðlegir og borgaralegir:) 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.1.2008 kl. 01:08

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Já sannarlega vildi ég að slíkt yrði raunin að heilshugar vilji fylgdi máli í þeim efnum , því slík endurskoðun er hvoru tveggja nauðsynleg og tímbær landi og þjóð til heilla.

Til þess að standa vörð um þau gildi sem þú nefnir hin þjóðlegu og borgaralegu tel ég að báðir flokkar þurfi að tala einu máli í því efni.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 2.1.2008 kl. 02:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband