Ók ég út í tunglsljósi.....

Ég tók upp á því að bregða undir mig betri fætinum ásamt syni mínum og við ókum austur í sveit í kvöld til að halda aðfangadag jóla hátíðlegan í sveitinni.

Suðurlandið var bókstaflega baðað í tunglsljósi og það lá við að maður þyrfti að setja upp sérsök gleraugu við akstur en ljóst var að ljósa var ekki þörf því tunglið lýsti veginn fullkomlega.

Hinn raflýsti Seljalandsfoss var eins og " abstrakt " málverk í öllu tunglsljósinu, ellegar klipptur út úr ævintýramynd.

Jökulinn minn er hvítu hulinn og jólalegur blessaður en allt hefur sinn sjarma , sumar og vetur.

kv.gmaria.

 

 


mbl.is Jólatungl í fyllingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

Ég tek undir þetta hjá þér Guðrún María. Það er búið að vera yndislegt veður í dag og núna í kvöld þegar ég var ásamt dóttur minni að keyra heim í Kollafjörðin ( við Esjuna ) þá var Esjan böðuð í tunglsljósi. Dóttir mín hafði á orð á því að nú væri lag að hafa myndavélina. Gleðileg jól.

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 24.12.2007 kl. 01:53

2 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Gleðileg jól til ykkar allra í sveitinni minni ;)

Ester Sveinbjarnardóttir, 25.12.2007 kl. 12:21

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gleðileg jól Guðrún María mín, og megi gæfan brosa við þér og syni þínum á nýju ári.  Takk fyrir það gamla. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.12.2007 kl. 12:34

4 Smámynd: Halla Rut

Kveðja til þín...

Halla Rut , 26.12.2007 kl. 00:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband