Félagsleg undirboð á vinnumarkaði.

Hvoru tveggja sitjandi valdhafar í landinu sem og forystumenn verkalýðshreyfingar í landinu hafa flestir horft þegjandi á þá þróun sem átt hefur sér stað í landi voru varðandi alls konar undirboð á vinnumarkaði þar sem fólk af erlendu bergi brotið hefur flust hingað til lands og er boðið að inna af hendi vinnu fyrir mun lægri laun en þekkst hafa.

Og enginn þykist sjá neitt eða heyra, sem stórfurðulegt má teljast.

Hið opinbera ríki og sveitarfélög taka þátt jafnvel þátt í þeim undirboðum sem hér um ræðir án þess að menn andmæli almennt. Laun fagstétta með menntun fara hnignandi.

Þvílíkt og annað eins andvaraleysi og aulaháttur hefur varla fyrirfundist lengi hér á landi, og ótrúlegt að umræða um mannréttindi almennt sé til staðar þegar einhver er tilbúinn til þess að bjóða fólki af erlendu bergi brotnu lélegri kjör í voru samfélagi en við sjálfir höfðum ákveðið að viðhafa.

Í mínu orðasafni kallast þetta hræsni.

kv.gmaria.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórbergur Torfason

Þarna kemurðu að kjarna málsins. Við horfum með galopin augu á ráðningar erlends vinnuafls í sífellt fleiri starfsgreinar hérlendis. Þetta er fólk sem er tilbúið (eða jafnvel narrað af óprúttnum starfsmannaleigum) að taka að sér störf fyrir ákveðin laun. Þetta fólk er ekki örlagavaldurinn heldur við sem höfum skapað okkur þetta umhverfi. Ofurþensla á vinnumarkaði veldur þessu.

Þórbergur Torfason, 19.11.2007 kl. 02:16

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já það er nú raunin Þórbergur.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 19.11.2007 kl. 02:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband