Ringulreiðarbandalag þriggja flokka um völd í Reykjavík, afar ótrúverðugt.

Gamla þjóðsagan þess efnis að Framsóknarflokkurinn sé opinn í báða enda hefur gengið í endurnýjun lífdaga af hálfu leiðtoga borgarstjórnarflokksins í Reykjavík Björns Inga sem virtist sjá sér færi á kattarþvotti af því að axla ábyrgð við stjórnvölinn í meirihluta. Tilvonandi borgarstjóri oddviti Samfylkingar í borginni Dagur B Eggertsson , er nú sem áður afskaplega óreyndur ungur maður sem á það til að fara úr einu í annað og slá fram klysjum í stað raka. Svandís Svavarsdóttir sem hvað háværast gagnrýndi málsmeðferð í málefnum Orkuveitunnar virtist hafa gefið afslátt af fyrri ummælum all nokkuð að merkja mátti í viðtali í Kastljósi. Margrét Sverrisdóttir veit hvorki hvaða flokkur veitti henni brautargengi sem borgarstjórnarfulltrúa né heldur hvaða flokki hún tilheyrir í dag. Samkomulag þessara aðila er ekkert nema um völd og stóla í ráðum á nefndum sem ekki getur talist undir formerkjum skynsemi.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Magnússon

Dagur er ágætur að því leyti sem ég þekki til hans. Ég er hins vegar hissa á hvernig Svandís Svavarsdóttir kemur fram eftir að hafa staðið sig jafn vel og hún gerði næstu viku á undan. Það er dapurlegt fyrir Margréti Sverrisdóttur varaformann Íslandshreyfingarinnar að vilja ekki kannast við þann stjórnmálalflokk. Þó hún hafi verið kosin af lista Frjálslynda flokksins þá sagði hún sig úr flokknum og er í öðrum flokki og getur þar af leiðandi ekki verið fulltrúi neins annars en þess stjórnmálaflokks sem hún er í núna. Það er ekki hægt að skilja annað af skrifum formanns Íslandshreyfingarinnar, Ómars Ragnarssonar en að hann telji að flokksmenn hans Margrét og Co séu komin til valda í Reykjavík. Gaman að sjá hvaða afstöðu þau taka til virkjanamála Orkuveitunnar.

Jón Magnússon, 12.10.2007 kl. 14:23

2 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Nú grætur íhalds kötturinn því mýsnar komust í hunangið æ æ . Það er bara verst að mér sýnist að í þessum Músahóp leynist ein og ein Rotta, svo engin veit hvernig þetta endar.

Georg Eiður Arnarson, 12.10.2007 kl. 21:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband