Hvers konar hugmyndir ráðamanna um valdaafsal íslensku þjóðarinnar á eigin ákvarðanatöku, er skref afturábak.

Sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar kom ekki á silfurfati því skyldum við ekki gleyma og það er eitt að hafa öðlast og eiga sjálfstæði og annað að selja það smám saman frá sér aftur fyrir nokkrar krónur hér og þar hinum og þessum til handa í endalausri göngu stjórnmálamanna til þjónustu við hagsmunaöfl þeirra er segjast eiga svo og svo mikla peninga hér og þar. Það er einnig eitt að viðhafa skipulag innan lands sem virkar illa eða ekki því við sjálfir getum jú enn tekið ákvarðanir um að breyta því hinu sama skipulagi en öðru máli gegndi án efa ef slíkar ákvarðanir væru komnar okkur til handa frá öðrum þjóðum .  Frelsi hvers einstaklings felst í sjálfstæði ákvarðanatöku um sitt nánasta umhverfi en enn höfum við vald um að velja okkur flokka við stjórnvölinn til eigin innbyrðis skipulags, sem eru og hljóta að vera verkefni þeirra sem valda eiga stjórnartaumum í landinu. Hvorki flokkar né heldur einstaklingar innan þeirra munu teljast ábyrgir meðan þeir hinir sömu kalla eftir stjórnvaldi erlendis frá til handa okkar þjóð.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hin svokallaða einkavæðing er réttnefnd einkavinavæðing.  Að með einkavæðingu, sé verið að koma ríksirekstri í hendur almennings, eru öfugmæli aldarinnar.  Það er verið að taka sameiginlegar eignir og ítök alþýðunnar og setja þær í hendur fárra útvaldra, sem hafa völd og efni til að kaupa þær.  Síðan þarf ekki að ske mikið til að þetta lendi í höndum erlendra stórfyrirtækja og mjög líklegt að svo verði, því flestir þessir mógúlar eru með megnið af fjárfestingunni í erlendum lánum.  Það þarf ekki mikið að ske í efnahagslífinu til þess að þessar eignir verði innleystar.  miðlungslækkun stýrivaxta t.d. 

Ef t.d. orkuframleiðsla, sala og dreifing verður seld, þá er tímaspursmál, hvenær við glötum okkar tiltölulega nýfengna frelsi.  Hér er í gangi samsæri um að ræna okkur þessu sjálfstæði og þarf ekki mikið hugmyndaflug til að sjá það.

Jón Steinar Ragnarsson, 24.9.2007 kl. 04:02

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Aðkoma krata með sína öfgafullu alþjóðahyggju að stjórn landsins
er verulegt áhyggjuefni þessa dagana. Jafnvel móðurmálið er orðið
einhver ,,afgangsstærð" kjá krötum til þóknunar erlendu auðvaldi.
Þá er langt gengið, svo ekki sé meira sagt.........

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 24.9.2007 kl. 20:57

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sælir Jón og Guðmundur.

Öfgafull alþjóðahyggja er rétta orðið.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.9.2007 kl. 00:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband