Grunnþjónusta við heilbrigði kostar einnig fjármuni, sem kosta þarf til.

Því miður stendur þjónusta við grunnheilbrigði ekki undir nafni frekar en þjónusta við grunnmenntun. Skortur á heimilislæknum á höfuðborgarsvæðinu hefur verið viðvarandi vandamál meðan sérfræðiþjónusta er næstum á hverju götuhorni, með niðurgreiðsluþáttöku hins opinbera. Mikið magn af sérfræðiþjónustu kemur ekki í staðinn fyrir hinn nauðsynlega þátt aðgengis sjúklinga í grunnþjónustu, því fer fjarri, hvað þá eitt þrjú hundruð þúsund manna þjóðfélag hafi mögulega efni á því að skipa málum á þann veg. Stjórnmálamenn á Alþingi hafa litlu áorkað til umbreytinga hér að lútandi um nokkuð langan tima en stórkostleg útgjaldaaukning hins opinbera til dæmis í formi lyfjakostnaðar við lyflækningar í kerfinu, kostar skattgreiðanda drjúgan hlut af tekjum þess hins sama. Sparnaðaraðgerðir og aðhald enda ætíð á sama punkti , starfsmannahaldi á hátæknisjúkrahúsum eins kjánalegt og það er sem þó þurfa að taka affallið af hinni misvirku þjónustu  þar sem skortur  á heimilislæknum annars vegar og magn sérfræðilækninga hins vegar, áskapar. ( dæmi. sjúklingur fer í aðgerð á einkastofu úti í bæ, fær fylgikvilla, hefur ekki heimilislækni sem reyndar næst aðeins í á skrifstofutíma, leitar á bráðadeild sjúkrahúsa ) Hver borgar ?

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Viðkomandi skurðlæknir á alltaf sinna þeim fylgikvillum sem upp kunna að koma. Ef þeir eru það alvarlegir að sjúkrahúsvist er nauðsynleg þá borgum við. Það skiptir ekki máli hvort við ákveðum að prófa svifdrekaflug eða að fara í aðgerð úti í bæ, við greiðum fyrir í báðum tilfellum.

Það vantar mjög skýra stefnumörkun á því hver á að gera hvað innan heilbrigðiskerfisins. 

Gunnar Skúli Ármannsson, 14.9.2007 kl. 17:01

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Gunnar.

Sammála skortur á skýrri stefnumörkun þarna er og hefur verið vandamál.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 15.9.2007 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband