HVAÐ réttlætir ákvarðanatöku um að banna ákveðnum aldurshópi aðgang að tjaldstæðum og útihátíðum ?

Ég sé mig tilknúna til þess að taka upp hanskann fyrir það unga fólk í þessu landi sem er til sóma innan við tvítugt. Mér er gjörsamlega ómögulegt að sjá að annað sé á ferð en atlaga af ákveðnum þjóðfélagshópi í þessu tilviki með flokkun aldurs vegna, er varðar aðgengi að tjaldstæðum og útihátíðum um verslunarmannahelgina. Slík mismunun þegnanna í formi stjórnvaldsákvarðanna líkt og bæjarstjóri Akureyrar bar fram í fréttum í kvöld er andstæð stjórnarskrá landsins. Annað fæ ég ekki séð, því miður.

kv.gmaria.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Það er svo sem margt sem réttlætir það og get ég gripið til allra klysjurakkanna sem ég nenni ekki að nefna.. Þegar ég var á þessum árum fyrir meira en öld síðan þá var mér mjög minnistætt sá gríluáróður sem þá var í gangi.. Aldurshópurinnn minn var sá allra versti að sögn fjölmiðla með tilheyrandi slagsmálagengi og verðandi glæpamenn. Hitt er að ég fann aldrei fyrir þessu sjálfur og sá ég að það var verið að dæma hjörðina út frá nokkkrum svörtum sauðum. Ég er því ALGJÖRLEGA viss að megin þorri unglinga eru bestu skynn en því miður þurfa þeir að lýða þennan eilífðargríluáróður og að sjálfsögðu er þessi kynslóð enn þá verri en mín kynslóð.. ÞAð sem mér þykir sorglegast.. að fólk á mínum aldrei er búið að gleyma hvernig það var sjálft þegar það var ungt. 

Brynjar Jóhannsson, 1.8.2007 kl. 02:27

2 Smámynd: Agný

Ástæðan fyrir því að hæutirnir eru orðnir svona sem ber vitni, er að okkar fasísku stjórnvöld eru búin að ákveða það að við  foreldrar séum ekki hæf til að bera ábyrgð á okkar afkvæmum sem eru undir sjálfræðisaldri!!

Þetta er sko stór breyting  se er orpðin á tæpum 40 árum..mínir foreldrare voru þá allavega talin vera hæf til þess að passa upp á að ég gerði nú engan skandal af mér....

Það var heldur ekki túlkað þá sem skömm að fara á ball eða fá að fara  með sínum foreldrum á djammið ..það var frekar upphefð ef nokkuða var.........

En ó nei  ekki í dag.....En þetta er tilgangur stjórnvalda..skapa úlfúð, togstreitu og þá eru  þeirra vegir allir færir.Þegar er b´æuði að skapa þannig andrúmsloft að allir tortryggja alla og mest sína eigin fjölskyldu..þá er þeim loks bíð að takadst ætlunarverkið en þap er ap koma fasískri stjórn ( einræðisherra)

Pældu aðeins í því sem ég skrifa hér....finnst þér þetta vera í lagi??? Ekki mér allavega......... Hversvegna í fjáranum var verið að hækka sjálfræðisaldurinn úr 16 í 18?????????

Ef að ég sem foreldri er ekki talin fær um að bera áyrgð á þeim einstaklingi sem flokkast sem barn samkvæmt nýrri reglugerð? Til hvers var ríkisstjórnin að þessu bulli?...Ja..eins og það sé svo sem nýtt..

En ósamkvæmnin í þessu dæml sem ég tel hér upp er alveg fáránleg!!!!! Í  dag verður einstaklingurinn fullorðinn í hollum.......... Byrjar við fermingu og endar við tvítugt....

En núna set ég "punktinn" yfir iiið.og stoppa....áðuur en ég drekki þér i undarlegum upplýsingum

Gæti haldið áfram inn á algjöra ófæru slóðir....hvort sem a við vegarslóða eða mannlega "slóða"....

Agný, 1.8.2007 kl. 03:27

3 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Humm. hvar skal byrja. Í það minnsta erum við alls ekki sammála núna Guðrún. Hvað á það skylt við fjölskylduhátíð að hafa blindfulla og útúrdópaða unglinga bröltandi yfir allt og alla? Berjandi mann og annan. Akkúrat engin virðing borin fyrir eignum fólks, þær einfaldlega eyðilagðar handahófskennt. Síðan ef einhver reynir að grípa inn í ferlið er sá hinn sami laminn til óbóta af skrílnum. Umgengnin um umhverfið er sú sóðalegast sem hægt er að hugsa sér. þetta er því miður reynslan og alveg eðlilegt að reyna að breyta 
því. Ég geri væntanleg ráð fyrir því að það séu fleiri en ég sem kæra sig 
ekkert um svona uppákomu, þegar fólk heldur í sakleysi sínu að það 
sé komið á fjölskylduhátíð. Mér finnst ekki skipta máli hvernig þetta 
var þegar ég var ungur, heldur skiptir það máli, viljum við hafa þetta svona áfram.

Hallgrímur Guðmundsson, 1.8.2007 kl. 07:30

4 Smámynd: Þóra Sigurðardóttir

Ég sé ekkert réttlæti í því að banna þessum aldurshóp að tjalda á útihátíðum. Ég man eftir því fyrir nokkrum árum þegar sonur þá 20ára og kærastan hans þá 18ára ætluðu að eiga rómantíska stund á Laugarvatni og tjalda þar til tveggja nætur. Það var ekki um verslunarmanna helgi. Þetta unga par sem er mjög reglusamt fékk ekki að tjalda því hún var ekki orðin 20ára en það er aldurstakmarkið þar. Það er margt af ungu fólki sem er til sóma í þessu þjóðfélagi og ég held fleiri en hin sem ekki kunna sín. Fjölskyldufólkið á það líka svo sannarlega til að missa sín í drykkju og ólætum.

Þóra Sigurðardóttir, 2.8.2007 kl. 01:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband