Túlkun framkvæmdastjórans á umræðunni sérkennileg.

Með ólíkindum má telja hvaða sjónarmiðum framkvæmdastjóri Alþjóðahúss telur sig vera að þjóna með ummælum sínum um frásagnir varðandi veiðiþjófnað úr ám. Á að flokka umræðu í stig og þá hvaða stig ?  Telur framkvæmdastjórinn sig í hlutverki þess sem dæmir hvaða stig umræða er eða er ekki um innflytjendur hér á landi ? Innflytjendur eru stór hluti af þjóðinni og ef um þá má ekki tala eða gagnrýna þá hina sömu varðandi það atriði til dæmis að hugsanlega hafi hluti þeirra hugsanlega tengst því sem um er rætt , þá hvað ? Er hann þá ekki að óska eftir ritskoðun á tjáningu landsmanna um aðra landsmenn í þessu tilviki innflytjendur ? Sjálf tel ég að þessi viðbrögð framkvæmdastjórans séu lítt til þess fallin að gera annað að verkum en að flokka og aðskilja þegna þessa lands.

kv.gmaria.


mbl.is Umræðan um veiðiþjófnað öfgafull
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Tek undir með þér.Það er innflytendum heldur ekki til neins framdráttar nein"sérmeðhöndlun"En maður má ekki tala um svona nema í skúmaskotum.Annars er maður stimplaður rassisti.Og kannske það einkennilegasta í þessu öllu að þeir sem virkilega vilja að komið sé vel fram við innflytendur og þér séu vel upplýstir um lög og siði hér þeir fá þennan stimpill fastast á sig.Kært kvödd

Ólafur Ragnarsson, 21.7.2007 kl. 23:27

2 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

þarna átti að standa þeir en ekki þér

Ólafur Ragnarsson, 21.7.2007 kl. 23:29

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir það Ólafur.

Já það er nokkuð mikið rétt. Ég er nú óskaplega hrædd um það að í þessu máli kunni svo að vera að fólk viti hreint ekkert um það að bannað sé að veiða, í ám og vötnum.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 21.7.2007 kl. 23:56

4 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Mín skoðun er afskaplega einföld um innflytjendur. Þeir sem kjósa það að flytja til Íslands, eiga skilyrðislaust að læra Íslensku og aðlaga sig Íslenskri menningu. Þetta verðum við Íslendingar að gera þegar við tökum ákvörðun um að flytja til annarra landa. Þannig getur það ekki verið annað en sjálfsögð krafa okkar Íslendinga að innflytjendur geri hið sama hér.

Hallgrímur Guðmundsson, 22.7.2007 kl. 00:18

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Ég tek alveg undir þá skoðun þína Hallgrímur.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.7.2007 kl. 00:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband