Málefni innflytjenda er mál sem þarf að ræða rétt eins og öll önnur mál.

Það er í senn kostulegt að horfa upp á upphrópanastílinn sem til verður ef Frjálslyndir leyfa sér að ræða málefni innflytjenda en þau mál eru einfaldlega mál samtímans sem Íslendingar eins og Norðurlandaþjóðirnar þurfa að ræða í sínu samfélagi sem eitt af þeim málum sem viðkemur samfélagsmótun til framtíðar og það atriði hvort við viljum horfa hér upp á lélegri aðbúnað til handa innflytjendum en við viljum sjálf viðhafa til handa okkur sjálfum. Ef svo er þá er slíkt viðhorf vægast sagt sérkennilegt því við viljum kenna okkur við mannréttindi og það atriði að standa þar vörð. Það eru mannréttindi þeirra sem hingað kjósa að koma að geta með góðu móti aðlagast íslensku samfélagi á þann veg að þekkja rétt sinn og skyldur með skilningi á þjóðtungu sem töluð er í landinu. Ef við erum ekki þess umkominn að kosta til þess fjármunum að aðlaga fólk þar að lútandi þá verðum við að staldra við og skoða hve miklum fjölda við getum tekið á móti til dæmis með tilliti til fjármuna til íslenskukennslu. Ef við gerum það ekki þá sitjum við uppi með vandamál þess efnis að fólk einangrast án þáttöku í nýju samfélagi og vitund og vitneskja um aðbúnað þeirra hinna sömu hvað varðar laun á vinnumarkaði og ýmsa aðra þætti við teljum hluta af okkar velferð verður lítil sem engin.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Vel mælt hjá þér, Guðrún María, og vel að merkja finnst mér þú almennt skrifa skynsamlega um þjóðfélagsmálin.

Jón Valur Jensson, 30.3.2007 kl. 01:14

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Þökk fyrir það Jón Valur, get sagt það sama um þín skrif.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 30.3.2007 kl. 01:20

3 identicon

Sæl, Guðrún María og aðrir skrifarar !

Ánægjulegt, að vera næstur í röðinni, eftir Jóni Val.

Við Grétar Mar Jónsson, ræddum þetta; nú fyrr í vikunni. Ég lagði mikla áherzlu á, að við gættum þess vandlega, að Múhameðskir yrðu ekki öllu fleirri, hér á landi en orðið er. Þeir, sem nú þegar eru komnir; skulu velkomnir verða, kasti þeir dellunni frá Mekka fyrir róða, eða láti lítið á henni bera;; og aðlagizt okkar menningu og siðum.

Það var aumkunarvert, að sjá hina ágætu liðskonu Ómars Ragnarssonar og Íslandshreyfingar hans; Ósk Vilhjálmsdóttur, kveða upp úr með stuðning sinn, við fjölmenningarruglið, hvað tröllríður röftum, víða í þjóðfélaginu; þessi misserin;; í Silfri Egils, á sunnudaginn var, 25. III. s.l.  

Guðrún María ! Mjög mikilvægt, að Íslendingar standi í lappirnar, í þessum málum öllum, munum þá hafa fulla sæmd af, í hvívetna. 

Með beztu kveðjum, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason, frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 01:31

4 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Rétt hjá þér gmaría það þarf að ræða mál innflytjenda og fræða nýbúa um réttindi þeirra.  Mikilvægt er að allir íslendingar geti talað íslenskuna og aðlagast þannig betur.  Sérhverjum manni er frjálst að eiga sína trú og fara sína leið á þroskabraut rétt eins og við fylgjum okkar sannfæringum.  

Ester Sveinbjarnardóttir, 30.3.2007 kl. 03:01

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það þarf líka að taka vel á reglugerðarfarganinu sem gerir fólki ókleyft að koma hingað frá Asíu og Ameríku jafnvel til að heimsækja börn og barnabörn.  Það er ólíðandi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.3.2007 kl. 01:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband