Megi kærleikur umvefja fólk í sorg.

Óhjákvæmilega er hugur manns upptekinn af umhugsun um fjölskyldur í þessu landi er syrgja ótímabært brotthvarf ættingja úr þessum heimi, snögglega af slysförum. Ég bið góðan Guð að vernda styrkja og styðja alla þá er þjást af því þunga höggi sem slíkar aðstæður eru. Sorgin er löng ganga í skógi tilfinninganna þar sem minningar eru fjársjóður okkar minningar um hið góða sem viðkomandi gaf okkur á lifsleiðinni. Sálmaskáldið Sr. Matthías Jochumson orti margar perlur sem sannarlega geta veitt huggun og eiga uppsprettu í trú hans sem einnig er mín. Ein ljóðlínan segir " Ég trúi þótt mig nísti tár og tregi og tárin blindi augna minna ljós " og trúin sem hver á líknar , leiðir og gefur von um birtu lífs á ný eftir él um hríð.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Fallega skrifað Guðrún María

Heiða B. Heiðars, 23.3.2007 kl. 01:05

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Þökk fyrir það Heiða, sjálf þekki ég svona högg, eins og svo margir aðrir.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 23.3.2007 kl. 02:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband