Helmingur núverandi ríkisstjórnar ber sömu ábyrgð og Geir Haarde.

Svo vill til að Björn Valur situr í ríkisstjórn með Samfylkingunni, en Samfylkingin ber jafn mikla ábyrgð á stjórn landsins þegar hér kom til hrun, eins og Geir Haarde.

Hver skyldi ábyrgð samstarfsflokksins VG, vera í því efni að sitja með hrunflokk í núverandi ríkisstjórn ?

Finnst viðkomandi þingmanni það virkilega vera í lagi að taka bara fyrir einn mann og segja, það var honum að kenna að hér hrundi allt.

Vægast sagt er þar um grunnhyggið viðhorf að ræða.

Alþingi væri sómi að því að endurskoða eigin mistök í þessu efni, sem eru mikil, allt frá atkvæðagreiðslu til þess að framlengja störf Landsdóms með fulltrúum sem ekki lengur eiga fulltrúa á þingi.

kv.Guðrún María.


mbl.is Björn Valur: Ígildi þess að afneita hruninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Suss.... það "HENTAR" alls ekki að vera að segja sannleikann núna.

Hér gengur allt út á hið sama.... blása sem mest út sína egin stóru lygi.

Óskar Guðmundsson, 16.12.2011 kl. 03:01

2 identicon

Ég verð að segja það ég sá viðtalið við Björn Val og það sannfærði mig enn frekar um að ég held að það sé ákaflega fátæklegt innanstokks í höfðinu á honum.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 16.12.2011 kl. 08:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband