Endalok Evrópusamrunans ?

Það hlaut að koma að þessum tímapunkti, annað gat ekki verið, þar sem ríki þurfa að íhuga eigin hagsmuni innan þessa ríkjasambands sem og þá hvaða hagsmuni viðkomandi ríki setja efst í forgangsröðinni.

Var það einhvern tímann markmið að þróa þetta upphaflega efnahagsbandalag í átt að þjóðríki í Evrópu ?

Fyrsta skrefið sem stigið var að sameiginlegum stjórnarskrárhugmyndum í bandalagi þessu, var upphafið að því sem nú er komið á daginn að mínu viti.

Fjölgun ríkja með afar ólika hagsmuni hafa einungis gert það að verkum að auka enn á vanda þessa ríkjabandalags.

Ofurkostnaður við yfirstjórnsýslu er óásættanlegur og það atriði að þetta ríkjasamband hendi fjármunum út í bláinn hvað varðar umsóknarferli nýrra aðildarríkja segir meira en mörg orð um fjármunaaustur án tilgangs.

kv.Guðrún María.


mbl.is Sarkozy segir Evrópu tvíklofna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bara þetta bruðl með Brussell & Strassburg pappírsflutningana

þar á milli. Þar er heljarmikið reiptog í gangi milli frakka og belga. Hversu mikilvægt sé að báðar þjóðir hafi höfuðstöðvar í sínum löndum. Ekki man ég hvað þetta eru mörg tonn á ári af pappír, en það eru nokkur hundruð vöruflutningabílar sem flytja þetta fram og til baka. (Er einhver að tala um mengun í Durban?)

Ég sá sjónvarpsþátt um þessa ótrulegu gjörðir í sænska ríkissjónvarpinu. Það væri nú allt í lagi að ríkissjónvarpið

á Íslandi sýndi einhverja tilburði til þess að sýna almenning hvað er að gerast í Evropu. Allt er nú ekki heilagur andi sem kemur frá Össurri.

Jóhanna (IP-tala skráð) 13.12.2011 kl. 09:20

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Jóhanna.

Það hefur ekki heyrst hósti eða stuna um þetta bandalag frá því sótt var um aðild, þvi miður, þar sem afskaplega margt er gagnrýnivert.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.12.2011 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband