Stjórnmálaumhverfið.

Þjóðin kaus vinstri stjórn til valda hér á landi eftir ringulreið við efnahagslega dýfu eins samfélags, en verkefnaval svo sem aðildarumsókn að Esb, sem Samfylking einn flokka með það á stefnuskrá fékk VG, til að samþykkja þýddi fyrirfram matreidda vandamálasúpu allra handa sem komið hefur á daginn.

Vandamálasúpu illinda og erja innan ríkisstjórnar sem og víðar í stjórnmálaumhverfinu þar sem já og nei og svart og hvítt fylkingar hafa komið til sögu, varðandi einungis málefni tengd Evrópusambandsaðild.

Á sama tíma átti að reyna að byggja upp og bæta með samvinnu allra handa, þótt viðkomandi hafi sjálfir kastað teningi óeiningar og sundrungar, sökum þess að þjóðin fékk ekki að kjósa um það HVORT hún kysi aðildarviðræður.

Þrjátíu og fjögur prósent fylgi núverandi ríkisstjórnar segir meira en mörg orð um það hversu lítill hluti þjóðarinnar fylgir stjórninni í þessu máli í raun.

kv.Guðrún María.


mbl.is Litlar breytingar á fylgi flokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þér Guðrún Marína,  þegar Jóhanna og Össur lögðust af þunga í að þvinga okkur til samstarfs við ESB var ljóst að þetta yrði ekki friðarstjórn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.10.2011 kl. 09:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband