Væntanlega eru þessir þingmenn ekki í Þjóðkirkjunni.

Mér er það að meinalausu að fólk sé trúlaust, en tel það löst þegar um kjörna þingmenn þjóðar er að ræða, það er einfaldlega mín skoðun.

Við Íslendingar eigum okkar þjóðtrú sem er kristin trú, og sannarlega þarf að hlúa að gildum hennar hvarvetna, ekki hvað síst á tímum erfiðleika í einu samfélagi.

kv.Guðrún María.


mbl.is 13 þingmenn mættu hjá Siðmennt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

nei, niður með kristni og trúarbrögð almennt!

Friðrik Sigurbjörn Friðriksson (IP-tala skráð) 3.10.2011 kl. 02:01

2 identicon

Nú langar mig bara að spyrja hvað sé af því að þingmenn séu hreinskilnir og viðurkenna trúleysi (og ættu því ekki að vera neyddir til kirkju), frekar en að vera lygarar (sem reyndar margir eru) og fara í kirkju til að kaupa sér fleyri atkvæði til að öðlast meiri völd?

Ef ég man rétt þá hefur fréttastofa Stöðvar 2 birt með reglulegu millibili könnun um afstöðu fólks um aðskilnað ríkis og kirkju. Ég vona að ég sé ekki að ljúga að þér þegar ég segi að frá árinu 1997 hefur sú könnun sýnt það að yfir helmingur þjóðar (og hefur farið vaxandi það hlutfall) vill aðskilnað. Hvað er þá að því að nokkrir þingmenn ákveði að sýna trúleysi sitt (sem þeir auðvitað hafa fullan rétt til, það getur ekki verið að það brjóti í bága við stjórnarskrá þegar kveðið er á rétt til trúar í henni! Enda er það hvergi tekið fram að fyrir setningu alþingis séu þingmenn NEYDDIR til krikju.)

Kv. Bjarni Rúnar Ingvarsson

Bjarni Rúnar Ingvarsson (IP-tala skráð) 3.10.2011 kl. 11:37

3 identicon

Þú telur stjórnarskrárvarið frelsi fólks til að fylgja eigin sannfæringu í trúmálum ekki semsagt ekki taka til þingmanna. Mig langar til að benda þér á að þau okkar sem hafa lesið hina kristnu bibilíu og áttað okkur á rangfærslunum sem þar fara þurfum líka okkar fulltrúa á þingi. Miðað við færsluna þína geri ég þó ekki ráð fyrir að þú gefir mikið fyrir almenn mannréttindi.

Gunnar (IP-tala skráð) 3.10.2011 kl. 14:16

4 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Af hverju telurðu það vera löst ef þingmaður er trúlaus?

Hjalti Rúnar Ómarsson, 3.10.2011 kl. 14:56

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Hjalti.

Ég tel það löst vegna þess að ég sjálf er kristinnar trúar.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 4.10.2011 kl. 00:36

6 identicon

Guðrún, það fær vart séð að þú búir yfir nokkurri samkennd með samferðarfólki þínu í gegnum lífið, nema það sé sömu skoðana og þú. Hljómar það eins og það beri vott að kristnum kærleika?

Gunnar (IP-tala skráð) 4.10.2011 kl. 14:12

7 identicon

Eru þetta ekki fordómar Guðrún?

Þingmaður gæti haft allar bestu skoðanir sem þú gætir ímyndað þér nema það litla smáatriði að hann trúir ekki á 2000 ára gamlan gyðinga uppvakning og þá er hann skyndilega óhæfur til stjórnarstarfa að þínu mati!

Mér þykir nú lítið koma til hins rómaða kristna umburðarlyndis ef það birtist í svona viðurstyggilegum myndum eins og þú sýnir fram á hér.

Þá má bæta því við að mér finnst persónulega neikvætt að trúað fólk geti komist í valdastöður af því til þess að trúa einhverju þá þarftu að gefa eftir mjög mikilvægan hluta af heilabúi þínu en það er skynsamleg-, rökræn- og gagnrýnin hugsun.

Kannski má þá skýra núverandi ástand í stjórnmálum með því að 4/5 þingmanna virðist skorta skynsama-, rökræna- og gagnrýnahugsun!

Jón Ferdínand (IP-tala skráð) 9.10.2011 kl. 16:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband