Eggjakast er ofbeldi, en ekki mótmæli.

Friðsamleg mótmæli eru eitt, ofbeldi annað og eggjakast er ofbeldi ásamt öllu því er varðar það atriði að skemma og eyðileggja í formi mótmæla.

Við hvorki eigum né megum samþykkja það hið sama sem hluta af friðsamlegum mótmælum og því fyrr sem við stöndum föstum fótum gegn slíku, því betra.

Það skiptir engu máli hversu reið við erum yfir þvi hve miklu við höfum tapað af efnislegum gæðum, aldrei skyldum við láta reiðina ganga svo langt að reyna að varða veginn ofbeldi, aldrei.

Ofbeldi getur nefnilega haft afleiðingar sem ekki verða aftur teknar.

kv.Guðrún María.


mbl.is ,,Eggið hæfði mig á vondan stað"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Samála því skal þingheimur fara vinna vinnuna sýna af alvöru svo heilu fjölskyldunar hætti að flytja úr landi vegna aðfarar stjórnvalda að hinum almenna borgara okkar lands í þágu banka og þjófa útrásarinnar!

Sigurður Haraldsson, 2.10.2011 kl. 09:08

2 identicon

Ef þú króar kött af úti í horni og pínir hann þar til hann klórar í þig eða bítur ... yrðirðu þá hissa og áhyggjufull yfir því að kötturinn skuli ekki hafa beitt "friðsamlegum mótmælum"?

Mig grunar að fólk sem skrifar líkt og þú hafi ekki kynnst á eigin skinni hversu hrikalegar afleiðingar óhæfverk þessarar ríkisstjórnar hafa haft á tugþúsundir Íslendinga: atvinnumissir, gjaldþrot, fjölskyldum svipt í sundur þegar fyrirvinnan neyðist til að flytja erlendis og ýmis annar mannlegur harmleikur, jafnvel sjálfsvíg.

Þegar ójöfnuðurinn og óheiðarleikinn og svikin eru orðin svo yfirþyrmandi að fólk nær ekki lengur andanum, þá er ekki við fórnarlambið að sakast þó svo það missi augnablik stjórn á sér í mótmælunum.

Sökin liggur öll gerandans megin, og í þessu tilfelli er gerandinn ríkisstjórnin.

Birgir (IP-tala skráð) 2.10.2011 kl. 17:24

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Birgir.

Sú er þetta ritar, hefur upplifað all margt á eigin skinni, og hinu svokallaða góðæri kynntist ég aldrei, það kom ekki til mín.

Mín skoðun er sú að reiðin réttlæti ekki ofbeldi hverju nafni sem það nefnist.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 2.10.2011 kl. 23:40

4 identicon

Sammála þessu. Auga fyrir auga gerir heiminn blindann. Egg í auga (já eða gagnauga) er ekkert gott heldur.

Þórarinn Heiðar Harðarson (IP-tala skráð) 3.10.2011 kl. 01:17

5 Smámynd: corvus corax

Ofbeldi kallar á ofbeldi. Eggja- og ávaxtakastið á laugardaginn voru hreinir smámunir miðað við það ofbeldi sem ríkisstjórnin beitir almenning í landinu. Og þótt þingmaður vankist, sem var reyndar vankaður fyrir, er það hreinlega hlægilegt miðað við þær hörmungar sem almenningur situr uppi með vegna þess að norræna HELferðarstjórnin gerir ekkert nema styðja fjármálahyskið, rífa niður velferðarkerfið og hækka skatta á almenning. Og það er örugglega engin von til þess að vankaði þingmaðurinn eða hans nótar vitkist þrátt fyrir eggjakast.

corvus corax, 3.10.2011 kl. 07:06

6 identicon

Mér finnst full langt gengið að notast við orðið helferð til að lýsa gjörðum lýðræðiskjörinnar stjórnar okkar. Orð sem lýsir ótrúlegri þjáningu og dauða milljóna manna, flóði af blóði sem gæti fyllt 10 ólympíusundlaugar.

En ég skil vel reiði þína. Við þurfum á nýjum aðferðum að halda sem færir lýðræðið nær fólkinu í landinu. Gætum orða okkar, veljum þau vel. Hugsum í lausnum, ofbeldi er ekki ein af þeim.

Þórarinn Heiðar Harðarson (IP-tala skráð) 3.10.2011 kl. 15:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband