Væri ekki nær að fjölga fólki við störf í skólunum ?

Því miður get ég ekki séð hvað starfshópur á að gera í þessu máli annað en að þiggja laun fyrir starf sitt þessa efnis, þar sem mun nærtækara væri að koma á stöðugildum sálfræðinga inni í skólunum, sem og það atriði að hafa nægilega margt fólk að störfum við hinn mannlega þátt starfanna hvarvetna.

kv.Guðrún María.


mbl.is Kvíði áberandi hjá stúlkum í efri bekkjum grunnskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl,

ég er sammála um að það væri sóun að fjölga ætti bara sérfræðingum í að "greina vandann"  heldur ætti að fjölga fólki til að sinna börnunum okkar í skóla og að efla ætti foreldrastarf til að létta á þessu vaxandi vandamáli sem er greinilega afleiðing þess að stúlkur eru næmari og ábyrgðarfyllri þegar kemur að vaxandi spennu á heimilum vegna kreppunar ! Þær taka í langflestum tilfellum til sín þegar erfiðleikar steðja að heimilum og vilja sjálfar oftast taka annaðhvort sökina á sig eða reyna að berjast við ofurefli að bæta stöðuna á heimilinu sem er oftast nær þeim ofurefli að etja !

Kvíðinn er rökrétt afleiðing af slíkri hegðun, enda eru þær á milli steins og sleggju en á sama tíma hafa strákar yfirleitt fengið kærulausara uppeldi sem miðast yfirleitt við að þeir geti leikið sér að vild án þess að vera stimplaðir óþekkir, heldur bara "strákar munu alltaf verða strákar ! "

Er svo mikil furða að stelpur taki svo mikla ábyrgð á sig þrátt fyrir ungan aldur !  Það er hins vegar óeðlilegt að þær skuli þurfa að bera vaxandi kvíða vegna vanda sem þær sköpuðu ekki sjálfar, heldur sem foreldrarnir sköpuðu e.t.v. sjálfir og sýna síðan reiðina fyrir framan börnin !

Brynja (IP-tala skráð) 29.9.2011 kl. 04:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband