Til hvers, húsið er risið.

Það er til lítils að mótmæla byggingu húss sem er risið, eða hvað ?

Mín skoðun er sú að ef menn ekki áorka breytingum áður en þær koma til sögu, með þvi að skapa samstöðu til þess, þá þjóni það því miður litlum tilgangi að gapa og góla seint og um síðir.

Það er búið að taka ákvarðanir og eyða peningum í þessa fjárfestingu og eina vonin er sú að þetta tilstand komi til með að bera sig í komandi framtíð.

Mikið lifandis skelfingar ósköp er mér sama þótt mér hafi ekki verið boðið að vera þarna viðstödd, hvað þá að það skipti mig nokkru máli hverjum var boðið.

Vonandi finna menn eitthvað annað en tunnur til að berja í formi mótmæla í framtíðinni hér á landi því það er að verða ofnotað fyrirbæri og þörf á meiri frumleika í því efni.

kv.Guðrún María.


mbl.is Mótmæla við Hörpu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Als

Það var þörf áminning til stjórnvalda og elítunnar á Íslandi að fjölmargir búa við kröpp kjör, menntað og með fúsar hendur hefur það ekki einu sinni efni á niðurgreiddri skemmtun til handa menningarfrömuðum og öðrum fyrirmennum íslenskum. Ég styð því heilshugar þessar aðgerðir og hefði viljað sjá fleiri tjá sig.

Fyrir nú utan hve ámáttlega leiðinleg mörg hver atrðiðin voru á þessari opnunarhátíð - vart til þess ætluð að höfða til breiðsa hóps Íslendinga. E.t.v. var það viðeigandi að láta fyrirmenni landsins sitja undir þessu fína tónlistarbraki og leyfa því að klappa yfir herlegheitunum og eigin mikilvægi.

En fyrst og fremst þetta; það er aldrei of seint að mótmæla vitleysunni, þó svo að búið sé að byggja hitt eða þetta - stendur ekki fyrir dyrum að byggja hátæknisjúkrahús bráðlega? Er ekki tímabært að tjá sig um þá endemis vitleysu?

Ólafur Als, 14.5.2011 kl. 07:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband