Lýðræðislegur meirihluti einnar þjóðar hefur talað.

Kosturinn við atkvæðagreiðslu meðal þjóðarinnar er sá að þar fæst afgerandi niðurstaða í deilumálum, þar sem öndverð sjónarmið verða að una við hina lýðræðislegu niðurstöðu mála.

Við Íslendingar eru ekki vanir því hinu sama en því ber að fagna að við fáum þess notið hafa áhrif með þessu móti og raunin er sú að það mun til framtíðar litið styrkja innviði stjórnmála í landinu.

Hin aldagamla forsjárhyggja sem verið hefur við lýði verður víkjandi þáttur og samfélagsleg vitund almennings um þáttöku í stjórnmálum eykst.

Samband stjórnmálaflokka við fólkið í landinu verður enn þyngra lóð á vogarskálar brautargengis leiðtoga í stjórnmálum hér á landi.

Þessi þjóðaratkvæðagreiðsla mun að mínu viti að mörgu leyti marka ný spor í sögu þjóðar.

kv.Guðrún María.


mbl.is Treystu ekki fólkinu í landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Til hamingju með sigurinn Guðrún María Óskarsdóttir !

Kveðja, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 10.4.2011 kl. 06:33

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Við skulum athuga það að ef Jóhanna hefði verið búin að ná fram þeirri breytingu sem hún vill á Stjórnarskrá okkar þá hefði þetta ekki verið hægt...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 10.4.2011 kl. 07:44

3 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Mikil gleði hér í Eyjum,burt með þessa Ríkistjórn og Bjarna Ben.

Vilhjálmur Stefánsson, 10.4.2011 kl. 10:09

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Þökk fyrir það Kristján, sömuleiðis.

Guðrún María Óskarsdóttir., 10.4.2011 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband