Vanhæfir forystumenn verkalýðs og vinnuveitenda á Íslandi.

Í raun og veru ætti það að vera á síðum heimspressunnar að forystumenn verkalýðsmála og vinnuveitenda á Íslandi sem gengið hafa í eina sæng, leggi sig fram um það að blanda sér í vægast sagt pólítiskt deilumál sem þjóðin gengur til atkvæða um eftir nokkra daga, að virðist undir þeim formerkjum að kúga almenning í landinu til niðurstöðu um að samþykkja auknar álögur á þjóðina sem forsendu kjarasamninga í landinu.

Í mínum huga eru aðilar þessir nú þegar vanhæfir við sín verkefni í raun og ættu að segja af sér hið fyrsta.

kv.Guðrún María.


mbl.is Þarf að endurmeta stöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæl Guðrún María. 

Því miður er engin hætta á að forseti ASÍ segi af sér. Hann hættir ekki fyrr en hann verðir borinn út úr húsakynnum ASÍ.

Það er hins vegar þrautin þyngri. ASÍ er orðið að sjálfstæðri stofnun sem hlýtir eigin lögmálum, stofnun sem er ríki í ríkinu! Og forkólfar flestra stéttarfélaga fylgja með, í von um að komast á jötuna.

Það þarf að gera byltingu innan stéttarfélaganna, en það var þó ekki uppörvandi sú kosning sem fram fór hjá VR, fyrir stuttu. Ekki ætla ég að dæma þann sem kosinn var, þó vissulega hæfari frambjóðandi hafi verið í boði að mínu mati, ég er ekki í því félagi og gat því ekki kosið þar. Ég gagnrýni félagsmenn fyrir lélega kjörsókn. Í þessu félagi hefur allt logð í deilum, stafna á milli, samt var einungis 17% kjörsókn.

Það gefur ekki von um að neinar breytingar verði á handónýtri verkalýðshreyfingu, gefur ekki von um að hægt verði að gera byltingar innan stéttarfélaganna, en það er jú forsemnda fyrir því að hægt sé að gera byltingu innan ASÍ!!

Gunnar Heiðarsson, 6.4.2011 kl. 08:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband