Sunnudagspistill.

Blessað vorið færist nær og nær, sem betur fer, en amstur daganna verður einhvern veginn auðveldara á alla lund þegar náttúran fer í grænan búning og fuglasinfónía hins íslenska vors, nærir sálina.

Ég held áfram við það að bæta mitt heilsufar og þakka fyrir að komast gegnum hvern vinnudag, en einn daginn er það upp og annan niður eins og vill verða.

Að erfiða og hvíla sig i réttu samræmi er lykillinn en ekki er það alltaf mögulegt og maður þarf að meta og vega hverju sinni, viðbrögð likamans og haga sér í samræmi við það, eftir efnum og aðstæðum.

Rétt einu sinni enn er ákveðin ringulreið í stjórnarfarinu hér á landi, þar sem kosningar um Icesaceklafann eru framundan ásamt stjórnlagaþingsframkvæmd í uppnámi.

Bæði þessi mál hanga því miður að hluta til á sömu spýtunni sem er aðildarumsókn að Evrópusambandinu sem annar ríkisstjórnarflokkur hefur á stefnuskrá sinni og kom í gegn á þingi, án umhugsunar um tímaskekkju þeirrar ákvörðunar.

Stjórnarfarið hefur því einkennst af ýmsum misvitrum ákvörðunum, að virðist með það að markmiði að koma aðildarumsókninni að Evrópusambandinu áfram, alveg sama hvað það kostar land og þjóð.

Sem betur fer styttist kjörtímabiið.

kv.Guðrún María.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Magnússon

Við erum svo heppin Guðrún að vorið er alltaf að koma meira og minna allan veturinn eins og nú árar. Því miður haustar aftur og vetrar og þannig getur það verið fram í maí.  En það hefur ekki vorað í stjórnmálunum í langan tíma og því miður virðast stjórnmálamenn hafa fá úrræði og litlar hugsjónir til að koma þjóðinni út úr spillingarfeninu og kreppunni. Evrópusambandið hefur ekkert með þetta að gera. Því miður þetta er allt sjálfskaparvíti hjá okkur.

Jón Magnússon, 6.3.2011 kl. 08:18

2 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Það er nú reyndar svo að það er engu líkara en að þeir sem styðja stjórnlagaráðstillögunu vilji stytta kjörtímabil núverandi þings um eitt ár.  Nái tillagan fram að ganga, þá verður frumvarp að nýrri stjórnarskrá lagt inn á Alþingi í sumar og þá væntanlega tekið fyrir næsta haust. 

  Þá taka við þrjár umræður um frumvarpið með nefndarstarfi á milli umræðna.  Að lokinni þriðju umræðu fer svo fram atkvæðagreiðsla um frumvarpið og verði það samþykkt, þá skal strax rjúfa þing og boða til nýrra kosninga.  

Ég efa það að það verði einhver stemmning fyrir því að málið verði ekki klárað á því þingi sem kemur inn á og varla er stemmning fyrir því að láta frumvarpið liggja í þinginu til haustsins 2012.

Kristinn Karl Brynjarsson, 6.3.2011 kl. 10:58

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Þökk fyrir innlegg Jón og Kristinn.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 7.3.2011 kl. 00:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband