Fullveldi þjóðar, áramótaávarp forsetans og fleira.

Fullveldið er ekki sjálfgefið, það kostar baráttu og seint skyldum við fórna því hinu sama, þar sem forfeður okkar unnu kraftaverk til handa einni þjóð úr fátækt til bjargálna og sjálfsákvarðanavalds.

Ég gat ekki betur heyrt en forseti vor legði megináherslur sínar í áramótaávarpi
sínu þess efnis, að brýna menn til dáða um að standa vörð um fullveldi einnar þjóðar.

Það eru þörf orð og aldrei of oft kveðin því eitt er að hafa vald til ákvarðanatöku um eigin mál og annað að selja þau frá sér fyrir stundarhagsmuni samsömunar við önnur ríki eins og hugsanleg aðild að Evrópusambandinu kann að verða fyrir okkur Íslendinga.

Einkenni flokka eins og Samfylkingarinnar sem hefur einn flokka aðild að Esb á stefnuskrá sinni er afstöðuleysi um stefnu í innanlandsmálum einnar þjóðar, og mun í framtíð skrifast sem eins máls flokkur að mínu viti, sem hefur sýnt sig við stjórnvölinn í ríkisstjórn landsins, því miður.

Afstöðuleysið veldur ringulreið á sviði stjórnmálanna, ekki hvað síst í því ástandi þar sem róa þarf einu þjóðfélagi fram á veg úr efnahagskreppu.

Flestir aðrir flokkar væru þvi betur til þess fallnir að fara með forystu við stjórnvöl landsins nú um stundir en sá flokkur sem einblýnir á það að afsala íslenskri þjóð fullveldi sínu.

kv.Guðrún María.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Gleðilegt nýtt ár GMaría. Það er minn skilningur líka á boðskap forsetans að hann óttist um afdrif þjóðar ef hún gefst upp fyrir ESB með inngöngu í það. Það sem nú þegar er í boði í samskiptum og samningum er meira en nóg fyrir litla Ísland. Fólk hlýtur að fara að sjá að áhugi stóru Evrópuríkja stafar fyrst og fremst af græðgi í auðlyndir okkar og nálgun við Norðurheimskautið og þær auðlyndir og yfirráð yfir siglingarleiðum en ekki af yfirþyrmandi góðmennsku eins og skilja hefur mátt á sumum. Ef þjóðin er svo glámskyggn þá er ekki von á góðu. Kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 2.1.2011 kl. 11:08

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Gleðilegt ár Kolla og takk fyrir innlitið.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 3.1.2011 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband