Yfirlýsing um kattaþvott af spillingu....

Þegar menn telja tilefni til þess að gefa yfirlýsingu þá er það vitað mál að eitthvað liggur undir steini, og það atriði að ekki hafi verið gefnar upplýsingar um greiðslur til sérstakra flokkshesta er malað hafa og mært aðgerðir ríkisstjórnarinnar fram og til baka hér og þar, kemur sannarlega ekki á óvart í íslenskum stjórnmálum.

Oftar en ekki hafa slíkir menn malað og mært stjórnvöld og talið sjálfir að þeir hinir sömu hefðu mikil áhrif og ekki væri sýnilegt að þeir væru eins og gráir kettir öllum stundum út um allt í fjölmiðlum án þess að almenningur kæmi auga á það.

Sem aldrei fyrr hefur það hið sama verið sýnilegra við tilkomu stjórnar vinstri flokkanna í landinu.

kv.Guðrún María.


mbl.is Vísar ásökunum þingmanns á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Jóhanna Sigurðardóttir ætti að tala varlega og forðast fullyrðingar. Hún hefur oftar en ekki þurft að éta ofaní sig slíkar fullyrðingar.

Gunnar Heiðarsson, 19.12.2010 kl. 08:43

2 identicon

Lengi er von á einum! Loksins, loksins! Fráær pistill. Bankamaður með fullu viti!Sjá:

http://www.islandsbanki.is/einstaklingar/fjarmalin-thin/greinar/nanar/item74376/Okostir_verdbolgu/

Hrúturinn (IP-tala skráð) 19.12.2010 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband