Fylgishrap Vinstri Grænna ?

Hin mikla óeining sem ríkt hefur innan raða VG, hlýtur að orsaka það að þingmenn hverfi þaðan ef fram heldur sem horfir, ef ekki þá er um að ræða sjónarspil til þess að slá ryki í augu almennings varðandi það að vera bæði með og á móti, sitt og hvað.

Það þarf nú ekki meira en eitt stykki flokkur setjist við stjórnvölinn að valdabarátta hefjist þar innan dyra, einkum og sér í lagi ef sá flokkur hefur ekki verið þar áður sem flokkur.

Lilja Mósesdóttir hefur margar málefnalegar athugasemdir fram að færa og á fullt erindi sem þingmaður, en það mun koma í ljós hvort, hugmyndir hennar ná brautargengi eða ekki.

kv.Guðrún María.


mbl.is Segist styðja ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Lilja Mósesdóttir hefur sannað sig sem þingmaður. Hún er rökföst og stendur á sínu, auk þess sem hún stendur við þau gildi sem flokkur hennar hefur boðað.

Ef hún heldur áfram að starfa innan þingflokks VG hefur hún viðurkennt formannsveldið, þá hefur hún kastað fyrir róða allri sinni vinnu á þingi hingað til!

Því á hún ekki annar úrkost en að segja sig úr þingflokknum. Það á við um Ásmund og Atla einnig.

Yfirlýsingar forsætisráðherra eftir þessa uppákomu og reyndar oft áður, er með þeim hætti að ekki verður betur séð en hún kæri sig ekki um þetta fólk innan stjórnarliðsins. Jóhanna telur að stjórnin sé sterkari án þeirra, með eins atkvæðis meirihluta á þingi.

Annað hvort er Jóhanna svo gjörsamlega úr takt við raunveruleikann, eða hún er að nota þetta tækifæri til að stytta líf stjórnarinnar á kostnað VG. Það vita allir að þau þrjú sem sátu hjá við samþykkt fjárlaga, eru einingis helmingur þeirra sem kallaðir hafa verið "villikettir" innan stjórnarinnar.

Gunnar Heiðarsson, 18.12.2010 kl. 09:43

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

já einmitt  kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 18.12.2010 kl. 21:23

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já Gunnar, það er nokkuð líklegt að flokkur VG, klofni svo fremi menn standi með sjálfum sér og sínum aðgerðum.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.12.2010 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband