Hvað með þessa kynslóð, hvers á hún að gjalda ?

Á þessi kynslóð að borga fyrir mistök fyrri ára sem og að forða því að fullvaxnir einstaklingar framtíðarinnar þurfi ekki að vita af því að hér varð efnahagshrun ?

Hvað með jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar herra utanríkisráðherra ?

Gildir hún fyrir sumar kynslóðir ekki aðrar, eða hvað ?

Sem sagt ef illa árar þá megi bara gera þá sem þjóðina byggja á þeim tíma að galeiðuþrælum skattkerfisins, til þess að komandi kynslóðir geti horft á peninga vaxa á trjánum.

Minn skilningur á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar er sá að stjórnvöld á hverjum tíma hafi ekki leyfi til þess að mismuna kynslóðum hvað varðar opinberar álögur á þegnanna, s.s að hækka skatta og gjöld í einu lagi um meira en helming svo dæmi sé tekið.

Sitjandi stjórn hefur farið offari í skatta og gjaldahækkunum á almenning í landinu með prósentuhækkunum sem eiga sér ekki fordæmi að ég tel áður í stjórnarsögunni.

Án þess að afnema vísitölutengingu verðlags, sem er eins og að skjóta sig í fótinn, því árangurinn, staðnað efnahagslíf hefur ekki látið á sér standa.

kv.Guðrún María.


mbl.is Láti ekki börnin borga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já já, það er nú bara þannig að sá sem stofnar til skuldbindingana hann á að borga, ekki afkomendur hanns.

Fjölmargt ungt fólk í landinu fór hamförum, og hagaði sér eins og bjánar, keyptu íbúðir, rústuðu þeim til að láta endurbyggja með öllu því flottasta og dýrasta sem til var, ók svo um á bílum sem það hafði engin efni til að kaupa.  Nú er komið að því að borga fyrir þetta. Snobb og flottræfilsháttur !!

Kv.

S. (IP-tala skráð) 2.11.2010 kl. 13:35

2 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Ég stofnaði ekki til neinna skuldbindinga og skulda ekki krónu, en þarf samt að bíta úr nálinni vegna þess að bankar, sjóðir og fyrirtæki voru hreinsuð innanfrá af forhertum glæpamönnum, það er fyrst og fremst vegna þessarra þorpara og skósveina þeirra í stjórnmálastétt sem svo illa er komið, en fólk lét vissulega flest glepjast af gullinu (lánum) sem haldið var að því og lét sölumenn heimsku og græðgi hafa áhrif á sig til hins verra, ekki hjálpuðu fábjánar á borð við Hannes Hólmstein til malandi sínar heimskulegu möntrum um að græðgi væri góð og lofuðu pleppismann í bak og fyrir.

Georg P Sveinbjörnsson, 2.11.2010 kl. 18:46

3 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Plebbismann  vildi ég sagt hafa!

Georg P Sveinbjörnsson, 2.11.2010 kl. 18:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband