Við ætlum ekki í Evrópusambandið.

Í mínum huga er ekkert ef, varðandi aðild að Evrópusambandinu, heldur NEI.

Það breytir því hins vegar ekki að okkar íslenska landbúnaðarkerfi er ekki heilög kú, frekar en fiskveiðikerfið og gegnum tíðina hefur ekki verið hægt að hrópa húrra fyrir heildsölu í mjólkurvörum sem lítið hefur verið annað en einokun svo fremi hægt sé að tala um landið sem markað.

Sama má segja um einhliða stærðarhagkvæmnispólítik í anda verksmiðjuvæðingar í landbúnaði, sem er sú sama og í sjávarútvegi, sem hefur kostað of mikið.

Landnýting á ræktuðu landi á Íslandi er léleg, og menn hafa ekki borið gæfu til þess að færa í auknum mæli framleiðslu yfir á lífrænar afurðir eins og hægt hefði verið að gera.

Þessu getum við hins vegar breytt sjálfir, til þess þarf ekki inngöngu í Evrópusambandið.

kv.Guðrún María.


mbl.is Áfram verði tollvernd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: The Critic

Vandamálið á íslandi er í meginatruðum það að íslendingar hafa ekki hugmynd um hvað Evrópusambandið snýst um. 

Við breytum ekki neinu sjálf í sambandi við innflutning á landbúnaðarvörum því það er ekki vilji stjórnmálamanna til að gera það og mun aldrei verða frekar en með aðrar úraltar sérhagsmuna reglur.

The Critic, 1.11.2010 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband