Okkur Hafnfirðingum er engin vorkunn að sækja þjónustu til Reykjavíkur.

Hins vegar þarf að meta það hvort það borgar sig að flytja þá starfssemi sem hefur nú þegar búið sér aðstöðu hér, sem og hvort hægt er að nota og nýta húsnæðið án breytinga sem kosta alltaf heilmikið.

Það þarf að greina þjónustuþörf fyrir veitta þjónustu sem og hvort opinber stefna er sú að sú hin sama þjónusta verði áfram veitt eða ekki í sama magni.

Hvers konar sérhæfing í lækningum útheimtir sína sérstöku aðstöðu þar sem tilflutningar á slíku kosta oft meira en hitt að hafa hlutina á sama stað.

Ef tilflutningur þjónustu frá St.Jóefsspítala getur komið í veg fyrir það að fæðingarþjónusta verði aflögð úti á landi, þá tel ég að við Hafnfirðingar getum lagt það á okkur að ferðast til Reykjavíkur í þjónustuna.

kv.Guðrún María.


mbl.is Þorgerður Katrín óskar eftir fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

flott hugarfar hjá þér - sammála bloggvinkona

Jón Snæbjörnsson, 12.10.2010 kl. 08:20

2 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Þetta er rétt hjá þér - þér líkt að taka á málum af skynsemi.

Fyrir mörgum árum sá ég skýrslu um ástand þessara bygginga - það var ekki góð útkoma - þótt vissulega séu þau reisuleg og falleg.

Væri ekki líka ráð að kynna almenningi svona skýrslu þannig að fólk sjái hvernig ástand þeirra er í raun og veru -

væntanlega er ástand húsanna ekki pólitískt.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 12.10.2010 kl. 11:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband