Vandamál Samfylkingarinnar sem prófessorinn nefnir ekki.

Aldrei þessu vant er ég óvanalega sammála prófessornum, um ýmislegt, en hins vegar skortir skýringar á vandamálum beggja ríkisstjórnarflokka, einnig Samfylkingarinnar.

Aðalvandamál Samfylkingarinnar sem flokks er það að engin stefnumál nema Evrópusambandsaðild, eru á hreinu.

Þannig hefur flokkurinn farið gegnum kosningar eftir kosningar án þess að vita hvort hann er með eða á móti kvótakerfinu, með eða á móti íslenskum landbúnaði, með eða á móti virkjunum, með eða á móti verðtryggingunni, með eða á móti gegndarlausri markaðsvæðingu, og með eða á móti handónýtri verkalýðshreyfingu þessa lands.

Ef eitthvað er þá hefur Samfylkingin spilað sig hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn í öfgamarkaðshyggju með einstefnu á Brussel.

Flokkurinn vill komast hjá því að þurfa að taka ákvarðanir um innanlandsmál sem heitið geti og telur að sá hinn sami geti einungis einblýnt á aðild að Evrópusambandinu og geti verið skoðanalaus.

Sökum þess er flokkurinn illa eða ekki stjórntækur til þess að sitja við stjórnvölinn í ríkisstjórn landsins, því miður.

kv.Guðrún María.


mbl.is Stjórnin óttast kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Gott blogg, Guðrún María, og hafðu þökk fyrir !

Með kveðju frá Siglufirði, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 26.7.2010 kl. 07:17

2 identicon

Samt gerir rìkisstjòrnin allt, sem hùn getur til ad fella heimilin ì landinu og gengur erinda fjàrmàlafyrirtækjanna. Gengur meira ad segja svo langt ad fà vanhæfan hèradsdòmara, sem tengist Lysingu, til ad kveda upp fyrir fram àkvedinn dòm ì thàgu fjàrmàlafyrirtækjanna.

Steini (IP-tala skráð) 26.7.2010 kl. 12:23

3 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Steini, hvernig tengist téður héraðsdómari Lýsingu ?

Kv., KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 27.7.2010 kl. 13:08

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir Kristján og Steini.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 27.7.2010 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband